Leita í fréttum mbl.is

Þrælasala LÍÚ

þræll 1-2

Kvótamiðlun LÍÚ er samráðsvettvangur útgerðafélaga innan vébanda LÍÚ, þar sem handhafar kvótans með samstilltum aðgerðum hafa haldið uppi háu kvótaverði til útgerða án kvóta.

Þá fjármuni sem handhafar kvótans fá við framsal hans nýta þeir í samkeppni sinni um kaup afla á fiskmörkuðum við fiskverkendur án útgerðar eða útgerðir án kvóta.

Handhafar kvótans ráðið því hver fær og getur nýtt rétt sinn til fiskveiða í atvinnuskyni og hver afkoma þeirra og fiskverkenda er.

Hluta kvóta má flytja milli ára, sem gerir það að verkum að aldrei verður umfram framboð.

Auk þess sem handhafar kvótans geta með málamyndafærlsum milli útgerða sinna búið til viðskipti.

Ekkert eftirlit er af hálfu stjórnvald með kvótaviðskiptum, ef frá er talið að þau ber að tilkynna til Fiskistofu, sem getur stöðvað framsal kvóta sé það mat starfsmanna hennar að framseldur kvóti sé umfram veiðigetu framsalshafa.

Ekkert almennt eftirlit virðist með því hvort um málamyndargerðinga sé að ræða enda fer Fiskistofa ekki fram á afrit reikninga fyrir viðskiptinn og með öllu er óvíst og óljóst hvort virðisaukaskatti sé skilað að viðskiptum með kvóta.

Með þessu skipulagi er íslenzka ríkið að styrkja þröngan hóp útvegsmanna, sem í skjóli einokunar og samráðs stýra fiskveiðum og fiskvinnslu hér á landi.

Félagsmenn í Landssambandi íslenskra útvegsmanna geta með sýndargerningum haldið uppi verði á kvóta og þar með skert samkeppnishæfni skipa án kvóta.

Eigendur skipa án kvóta þurfa að greiða það verð fyrir kvótann sem kvótaeigendurnir setja upp hverju sinni.

Verðinu ráða þeir einir.


Flottrollsveiðar ógna öllu lífríki hafsins við Ísland

Hér fyrir neðan er upptalning á afleiðingum flottrollsveiða við Ísland. Þetta eru nákvæmlega sömu afleiðingar og aðrar þjóðir hafa orðið fyrir vegna flottrollsveiða.

Sjá hér og hér og hér og hér og hér

1. Þorskstofninn í lágmarki árum saman vegna fæðuskorts og sjálfráns.    

2. Nánast allir rækjustofnar uppétnir vegna fæðuskort.

3. Allur hörpudiskstofn dauður vegna næringarskorts og sýkingar.

4. Loðnustofninn í lágmarki vegna gengdarlausrar ofveiði.

5. Karfastofnar í lágmarki.

6. Grálúðustofninn nánast hruninn vegna fæðuskorts.

7. Rauðsprettustofninn í sögulegu lágmarki vegna fæðuskorts.

8. Kolmunannstofninn hrunin vegna gengdarlausrar ofveiði í flottrol.

9. Sandsíli og trönusíli uppétið vegna fæðuskorts.

10. Sjófugl allur í stórkostlegri útrýmingarhættu vegna fæðuskorts.

11. Síldarstofnin hrunin vegna sýkingar.


mbl.is Lundavarpið í molum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiðiheimildir ekki varðar af af eignaréttarákvæði stjórnarskrár

veiðiheimildir ekki varðar

Ætli þessum dómi hafi verið stungið undir stól með viðeigandi hætti svo tryggt væri að Hæstiréttur færi ekki að vasast neitt í málinu að óþörfu ?  

Árið var 2006 og kvótakerfið og þar með bankakerfið í bráðri hættu.

Ath: Tvísmellið á myndina til að stækka hana.


mbl.is Skerðing gæti skapað bótaskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steinunn frá Sjöundá

steinunn_a_sjoundara.jpg

Steinunn Sveinsdóttir f:1769 - d:1805, var gædd öllum þeim kostum, sem konu má prýða, frá náttúrunnar hendi. Hún var fluggáfuð, viðkvæm og glaðlynd. Allra kvenna var hún fríðust og tígulegust. Andlitið var svipmikið og einbeitt, og gullhárið hennar tók henni í beltisstað. Tímarnir liðu. Hún varð gjafvaxta og bar eins og gull af eiri af stallsystrum sínum.


Sverrir Hermannsson um Ólaf Ragnar

sverrir hermannsson um ólaf ragnar

Sverrir Hermannsson hafði líkast til rétt fyrir sér eins og oftast áður er hann ræddi um Ólaf Ragnar Grímsson við blaðamann Pressunar árið 1989.


Þórólfur Tálknfirðingur

arnarstapi571_1198727.jpg

Þórólfur hét maður jónsson. Hann bjó að Litla-Bakka og Arnarstapa í Tálknafirði. Þórólfur var hagmæltur og þótti ákvæðaskáld. Hann komst í kvennamál svo mikið, að lífleysi lá við, enda var tekið mjög hart á slíkum sökum um þær mundir og farið beint eftir Stóradómi. Þá er málið hafði verið tekið fyrir, sá einn heimamanna Þórólfs hann reika einan úti eitt kvöld og heyrði, að hann kvað vísu þessa fyrir munni sér með miklum áhyggjusvip:

Þú sem hefur gæzkugeð

guð, til þinna vina

í kulinu norðan komdu með

Kristur , Hollendina.

Um kvöldið lagði á norðanbyr, og lagði hollenzk dugga inn á fjörðinn. Þessa nótt hvarf Þórólfur, og höfðu men fyrir satt, að hann hefði komist í dugguna, en aðrir ætluðu að henn hefði týnt sér. Löngu seinna kom Þórólfur aftur út með Hollendingum og dvaldi þrjú ár í Tálknafirði, áður en farið var að hrófla að nýju við máli hans. Þá heyrðu menn, að hann kvað enn.

Nýr norðangarður

neyði Hollenzke,

hlérinn svo harður

að haldist segl frá tré.

Varla fyrir voða

verði báran stór.

Eins og brimboðar

belji mestur sjór.

Ég bið rætist ósk mín há.

Allt mótlæti kvelji þá,

þar til sæti á friði fá

fyrir öldujór.

Þá kom þegar drif mikið, og lögðu Hollendingar inn. Þórólfur fór utan með þeim öðru sinni, og spurðist eigi til hans síðan.


Hrákalúkumál

Maður hét Gísli Jónsson og var oftast nefndur “Saura-Gísli” en hann var bóndi á bænum Saurum í Dölum. Gísli var fæddur í Dalasýslu árið 1820 en dó í Pembina í Norður Dakota 12. Desember árið 1894. Það var vani Gísla að fara í allar fjárréttir...

Eyðing byggða og félagslegar hörmungar

Handhafar kvótans með samstilltum aðgerðum halda uppi háu kvótaverði til útgerða án kvóta. Þá fjármuni sem handhafar kvótans fá við framsal hans nota þeir í samkeppni sinni um kaup á afla á fiskmörkuðum við fiskverkendur án útgerðar eða útgerðir án...

Orðin tóm

Þessi ályktun Framsóknarflokksins eru orðin tóm og til þess ætluð að slá ryki í augu almennings. Allur málflutningur þingmanna Framsóknar um sjávarútvegsmál á yfirstandandi kjörtímabili gengur þvert á þessa ályktun.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband