Leita í fréttum mbl.is

Mikið hagsmunamál fyrir íslenzka þjóð

gamall síldarbátur

Hætta ætti loðnuveiðum við landiðí eitt skipti fyrir öll og banna allar veiðar með flottrolli.

Flottrollið veldur gríðarlegum skaða á öllum fiskistofnum beint og óbeint. Smug fiska í gegnum flottroll skilur eftir sig 10-15 fallt af dauðum fiski í sjónum umfram það sem skipin koma með að landi.

Flottrollið splundrar göngu fiskitorfa og ruglar göngumynstur þeirra.

Loðnan er undirstaða alls lífríki sjávar við ísland. Ef loðnan er drepin hrynja margir fiskistofnar eins og við höfum illilega orðið vitni af.

Nærtækasta dæmið er léleg nýliðun þorsks, hrun hörpudisksstofnsins, hrun rækjustofnanna og margt fleira.

Baráttan um ætið bitnar síðan með ógnarþunga á öllum sjófugl við Ísland sem að endingu rústar tegundunum.

Baráttan um ætið á ekki að standa á milli gráðugra grútapramma-útgerða og alls lífríki sjávar við Ísland heldur á milli tegundana.

Stjórnvöld verða að grípa strax til aðgerða.


mbl.is Hrygningarstofn loðnu 355 þúsund tonn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Já Níels. Menn ætla seint að skilja samhengið í þessu.  Og er auðvitað orðið of  seint.

Þórir Kjartansson, 12.1.2010 kl. 16:47

2 Smámynd: Pixxy

Auðvitað á að banna veiðar á loðnu með flotvörpu.  Engin þörf á að banna veiðar á loðnu Held að þú sért mesti þverhaus sem bloggar um sjávarútveg getur ekki haldið því fram að loðna sé aðalfæðutegund okkar stofna. 

 Hvernig væri að þeir sem væru að veiða bolfisk færu nú að ganga betur um þá stofna hætta þessu stórfelda smáfiskadrápi og svo er 1 menn eru komnir á hringningaslóðir nánast um leið og fiskurinn er búinn að drulla úr sér og hrærast í þessu, ég verð alltaf pirraður að rekast á blogg hjá þér með þessum fréttum.

Pixxy, 12.1.2010 kl. 17:47

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það hníga öll rök að því, að það verði að banna loðnuveiðar alfarið um ótiltekinn tíma, jafnvel til frambúðar. Það er ekki eftir neinu að bíða fyrir stjórnvöld í þeim efnum.

Jóhannes Ragnarsson, 12.1.2010 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband