Leita í fréttum mbl.is

Auðsveipar undirlægjur og þrælar

þræll LÍÚ

Það vekur furðu mína að lesa þessa sameiginlegu ályktun Snæfellinga.

Það er greinilegt að þrælsótinn er að drepa trillukarla á Nesinu.

Þykir sjómönnum á Arnarstapa í Ólasfsvík, Rifi, Grundarfirði og Stykkishólmi svona ljúft og skyllt að beygja sig undir útgerðarauðvaldið og LÍÚ með því að ástunda þann skepnuskap að leigja kvóta fyrir bróðurpartinn af allri innkomu ?

Nær væri að menn fögnuðu fyrningarleiðinni innilega með von um að geta brotið af sér þrælahlekkina og orðið frjálsir menn að nýju með leigu á aflaheimildum frá þjóðinni á sanngjörnum verðum.


mbl.is Vara við hugmyndum um fyrningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Mikið er ég sammála þér í þessu, láta hjólið fara að snúast eins og það ætti að gera. Vel orðað hjá þér og sérstaklega í lokin. Hef verið að velta þessu mikið fyrir mér, en með hjálp þinni þá er maður að sjá betur og betur hvar hagsmunirnir eru. En ættu að vera að sjálfsögðu hvar annarstaðar en hjá Þjóðinni sjálfri.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.1.2010 kl. 17:22

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nú bara eins og sumum sé ekki sjálfrátt. Þessir eru greinilega haldnir einhverri sjálfseyðingarhvöt. Annars er þetta alltaf svona þegar eru einhverjuir sem telja sig vera með allt á þurru, þá tala þeir aumingjana til fylgilags við sínar hugmyndir. Þannig var það líka þegar kvótinn var settur á smábátana, Það voru einhverjir í hverju félagi sem sáu stórar tölur í væntanlegum kvóta hjásjálfum sér og náðu að ráða ferðinni.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.1.2010 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband