Leita í fréttum mbl.is

Rommkópar - tálbeita hákarlamanna

theódór friđriksson

Á seinni hluta nítjándu aldar kom til sögunnar ný beita sem íslenzkir hákarlamenn sögđu algjöra byltingu viđ veiđar á hákarli; voru ţađ litlir selkópar vestan frá Breiđafirđi, og voru ţeir látnir liggja í pćkli í heilu lagi í sterku íláti.

En ţađ merkilega viđ ţessa hákarlabeitu var ţađ, ađ selkóparnir voru ekki ristir á hol, heldur voru ţeir ađeins opnađir međ svolítilli stungu, ţegar búiđ var ađ veiđa ţá, og var sterku rommi helt gegnum smuguna inn í kópinn; vínandinn samlagađist innýflunum og blóđinu og fóru út í spikiđ; var ţess og vandlega gćtt , ađ rommiđ fćri ekki út úr skrokknum aftur og vandlega saumađ fyrir opiđ.

hákarlaskip upp á kambi á siglufirđi anno 1890

Ţegar kóparnir voru teknir upp úr ílátinu voru ţeir skornir sundur í smábeitu, og angađi af ţeim lyktin er ţeir voru opnađir, enda var ekki tútt um ađ sumir drykkjumenn langađi til ađ bragđa á romminu, sem inn í ţeim var, ef ţeir voru alveg vitundarlausir af brennivíni. – Ţetta voru nefndir rommkópar og voru ţeir einhver hin allra mesta tálbeita fyrir hákarl.

Á ţessum hákarladöllum  - eins og hákarlaskipin voru nefnd – var útbúnađur allur međ líku móti. Menn beittu hrossakjöti og selspiki. Skinniđ var látiđ tolla viđ selbeiturnar og stungiđ hníf í gegnum hverja beitu; var önnur beitan höfđ af sel og önnur af hrossakjöti – á víxl. –

útbúnađur

Mörgum beitum var beitt í einu, var ţeim ţrýst upp eftir leggnum á „sókninni“(hákarlaönglinum), síđast var bugurinn fylltur međ ýmsu gumsi úr hákarlinum, svo sem munnamögum, gallhúsum, hjörtum o. s.frv., og tóbaksmenn gerđu sér ţađ oft ađ reglu ađ hrćkja á beituna um leiđ og sókninni var kastađ fyrir borđ. –

Viđ vađsteininn var járnkeđja, tveggja fađma löng, sem fest var viđ sóknina, en millivađarhaldsins var kađalspotti á ađ gizka fađmur á lengd, sem kallađur var „bálkur“.

Heimild: Theódór Friđriksson.


mbl.is Fyrstu hákarlarnir í land
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband