Leita í fréttum mbl.is

Er brottkast á síld orsökin fyrir sýkingu í stofninum ?

Ichthyophonus hoferi

Það læðist að manni sá grunur að ástæðan fyrir sýkingu síldarstofnsins sé sá gengdarlausi sóðaskapur sem viðgengist hefur á síldarmiðunum sl, nokkur ár.

Risavaxin flottrollsskip með fullvinnslu um borð hafa verið að ryðja sér til rúms með aukinni græðgisvæðingu í sjávarútvegi.

(Ryksugutogarar eins og Kristján Ragnarsson fyrverandi formaður LÍÚ kallaði þýsku vinnsluskipin fyrir 30 árum).

Undanfarin ár hefur síldinni verið skóflað upp í stórum stíl upp í fjöru við Grundarfjörð og víða. Mörg skip hafa fengið mun meira magn en þau hafa ráðið við að taka um borð og oft á tíðum hefur mörg hundruð tonnum verið slept dauðum niður á veiðislóðina.

Fullvinnsluskipin eru gjörn á að liggja yfir og nálægt veiðislóð síldarinnar sólarhringum saman og smásíld, slóg, hausar og ýmis afskurður fer þá í hafið í þúsunda tonna tali.

Ekki er ósennilegt að þetta sé ástæðan fyrir ástandinu á síldarstofninum í kringum landið !

Eins vakna upp spurningar um hvers vegna síldin hefur þjappað sér á mjög svo óvenjuleg svæði inn í Grundarfirði og innan skerja við Stykkishólm.

Hvaða áhrif hafa hinir nýju öflugu fjölgeislamælar á síldartorfunar í bland við mörgþúsund hestafla vélbúnað síldarskipanna ?

Nú verður ekki undan því vikist að "FISKISTOFA" ransaki málið og beiti við það sömu aðferðum og stofnunin hefur notað á undanförnum árum gegn ýmsum einyrkjum með veiðileyfissviftingum.


mbl.is Mikið um dauða síld við Stykkishólm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Níels, ef síldin er ekki af réttri stærð er henni

sleppt, afhreistraðri, svona er Íslenska kvótakerfið.

Aðalsteinn Agnarsson, 16.12.2011 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband