Leita í fréttum mbl.is

Þorskkvótinn fimmfalt verðmætari á Íslandi en í Noregi

Verð á aflaheimildum á Íslandi er upplogið vegna gríðalegrar skulda sjávarútvegsfyrirtækjana og helgast verðið af þeirri stöðu sem fyrirtækin eru í gagnvart bönkunum:

4a14931rAth; Hér kemur frétt af skip.is frá því í dag sem lýsir því best sem ég hef áður haldið fram ásamt mörgum fleirum þar á meðal ráðherra sjávarútvegsmála sem viðrað hefur þá skoðun sína í ræðum og riti að verð á aflaheimildum sé í engu samhengi við raunveruleikann.

Hátt verð á þorskkvótum á Íslandi vekur furðu í Noregi en samkvæmt athugun sjávarútvegsblaðsins Fiskaren er verð fyrir eignarkvóta á Íslandi oft meira en fimmfalt hærra en í Noregi.

Vitnað er til fréttar Morgunblaðsins um að kílóið af varanlegum þorskkvótum sé selt á jafnvirði 270 NOK á Íslandi og að tilboðum upp á 240 NOK/kg sé ekki tekið. Í Noregi hafa varanlegir þorskkvótar verið verðlagðir á um 45-50 NOK/kg.

Verð á togarakvótum getur samt verið nokkuð hærra en það sem greitt er fyrir t.d. þorskkvóta línuskipa. Nefnd eru tvö nýleg dæmi. Í öðru tilvikinu var línubátur seldur með 200 tonna kvóta og í því tilviki var kvótinn metinn á 50 NOK/kg. Í hinu var lítið togskip selt og þar var kvótinn metinn á 70-80 NOK/kg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

takk fyrir fallegt comment .... guð geymi þig líka :)

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 15:13

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Það er aðeins eitt svar við þessu rugli.xf.

Georg Eiður Arnarson, 27.2.2007 kl. 20:33

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hvar verða þessi verð til? Hvaða viðmið eru notuð? Er þetta bara geðþóttaákvörðun?  Þetta er rosalegt misræmi og raunar stór frétt og rannsóknarverð finnst mér.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.2.2007 kl. 02:44

4 identicon

Eftir því sem fyrirtækin útvöldu sökkva dýpra og dýpra í skuldafen bankana þeim mun hærra verður verð á kvóta svo að fyrirtækin eigi fyrir skuldum í reikningum sínum. Aðferðin sem er notuð er alþekkt. Útvalin fyrirtæki selja sín á milli kvóta á verðum sem alltaf hækka dag frá degi og eru það einungis sýndargjörningar. Það eru engvir peningar í þeim viðskiptum einungis upplognir reikningar sem Fiskistofa (Förðunarstofa) kvótakerfisins leggur blessun sína yfir án þess að ransaka hvað stendur á bak við viðskiptin. Þannig fá þeir út opinbert skráð verð á aflaheimildum.

níels a. ársælsson (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 03:01

5 identicon

Eftir því sem fyrirtækin útvöldu sökkva dýpra og dýpra í skuldafen bankana þeim mun hærra verður verð á kvóta svo að fyrirtækin eigi fyrir skuldum í reikningum sínum. Aðferðin sem er notuð er alþekkt. Útvalin fyrirtæki selja sín á milli kvóta á verðum sem alltaf hækka dag frá degi og eru það einungis sýndargjörningar. Það eru engvir peningar í þeim viðskiptum einungis upplognir reikningar sem Fiskistofa (Förðunarstofa) kvótakerfisins leggur blessun sína yfir án þess að ransaka hvað stendur á bak við viðskiptin. Þannig fá þeir út opinbert skráð verð á aflaheimildum.

níels a. ársælsson (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 03:02

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta minnir svolítið á ENRON hneykslið. Sama prinsipp í rauninni. Við megum semsagt búast við skyndilegu hruni, þegar kíkt verður á vbak við tölurnar.  Kannski er það þessvegna sem þetta viðgengst. Það þorir enginn að opna á þetta vegna þess að þeir vita hjá förðunarstofu hvað mun ske.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.3.2007 kl. 11:28

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

NÝ KYNSLÓÐ viðskiptamanna; siðblindir (Psychopatar: kallað í réttarkerfinu geðvilla) spretta upp í viðskiptalífinu víða um heim ef marka má grein í viðskiptablaðinu "Fast Company". Greinin heitir "Is your Boss a Psychopath?" Þar er vitnað í 71 árs gamlan prófessor við UBC háskólann í Vancouver Kanada, Robert Hare. Hann er þekktur glæpasálfræðingur og hefur stundað rannsóknir á nýjum tegundum glæpa, viðskiptaglæpum. Hare hefur unnið náið með FBI og lýsir hann forstjórum á borð við Enron og World Com, hinum dæmdu, Bernard Ebbers og Andrew Fastow, sem siðblindum, kaldrifjuðum einstaklingum. "Þeim er sama um tilfinningar annarra. Í þessum mönnum finnst hvorki sektarkennd né eftirsjá. Þeir sjá ekki sársaukann sem að þeir hafa valdið öðru fólki og sjá ekki að þrátt fyrir að einstaklingar missi aleiguna hafi það haft eitthvað með siðleysi þeirra sjálfra að gera." Siðblindir raða svo öðrum "veikum" einstaklingum svo sem starfsmönnum, eiginkonum og kærustum í kringum sig. Alltaf er það fólk með lágt sjálfsmat. "Fólk á að haga sér vel og af virðingu gagnvart þeim. Leikarahæfileikar þeirra eru einstakir og þeir hrífa okkur með sér til þess eins að hafa okkur að leiksoppum," segir Hare, "þeir eru nefnilega svo "likable", Psycopatarnir! Þeir setja upp grímur og laða að sér fólk eins og í dáleiðslu. Þeir eru hjartalausir tækifærissinnar sem eins og listamenn laða fram myndir sem eiga sér enga stoð í raunveruleika heilbrigðs fólks. Þeim leiðast rútínur, þurfa stanslausa örvun og að eignast fleiri fyrirtæki, tæki og tól sem koma þeim hraðar en öllum öðrum á toppinn. Tilgangurinn er annar en okkur virðist í fyrstu nefnilega sá að ganga frá öðrum í leiknum, að sigra "leikinn". Siðleysinginn er nefnilega ekki í viðskiptum, hann er í leik. Mesta nautnin er að ná valdi á öðru fólki oft til þess eins að svívirða það síðar. Það er nautn að niðurlægja annað fólk, jafnvel þá sem að þeir þykjast elska. Þeir elska ekki en þrífast á illskunni og hatrinu í sér. Hare skilgreinir nýja kynslóð manna í viðskiptaumhverfi 21. aldarinnar. "Þeir eru snöggir, njóta almenningshylli en búa yfir eyðandi, rótlausum, samviskulausum, siðlausum eiginleikum sem koma þeim áfram í viðskiptum." Lygar, bakstungur, svik, undirförli, kvenfyrirlitning, sjálfhverfa og illska hafa engar merkingar í þeirra hugarheimi aðrar en þær að komast áfram á toppinn og eignast meira og ná lengra í viðskiptum. Þeir kaupa starfsmenn og konur og eru samkvæmt "Fast Company" áhrifamiklir í því... þeir ná gríðarlegum árangri í að sannfæra hinn auðmjúka lýð um að þeir séu snillingar, að þeim sé treystandi og að þeir vinni af góðmennsku en ekki græðgi."

UndirlægjurnarLögfræðingar, endurskoðendur, forstjórar sem og stjórnarformenn, stjórnir og fjölmiðlamenn leggjast undir siðblindingjana eins og auðmjúkir þjónar. Það reynir verulega á samfélags- og siðferðisþroska þeirra sem ákveða að vinna fyrir, búa með eða giftast slíkum mönnum. Martha Stout sálfræðingur hjá Harvard Medical School sem rannsakað hefur útmörk mannlegrar hegðunar segir að það sé frísku fólki ekki tamt að trúa að til séu menn svona langt frá því sem heilbrigður maður kallar að vera "góð manneskja". Að einhver geti villt svona á sér heimildir, verið svona "illræmdur" en samt verið opinberlega virtur er óhugsandi frísku fólki. Spennan og leikurinn hjá siðleysingjanum snýst um ánægjuna yfir því að særa og skemma fyrir öðrum. Hann notar fyrirtækið sem tæki til þess að mata sjúkdóminn en hefur sjaldnast hagsmuni fyrirtækisins sjálfs í huga. Það skiptir ekkert annað máli en "illmennið" í honum sjálfum sem öskrar á spennu og viðskiptasigra. "Láttu ekki hól og smjaður þeirra virka djúpt á þig. Þeir eru að leika á þig. Þegar þeir setja á þig titil (svo sem framkvæmdastjóri, vaktstjóri, grænmetisyfirmaður, sölustjóri, fjármálastjóri, símastjóri eða bílstjóri) láttu það ekki á þig fá það er engin innistæða önnur en sú að þú þrælir þér út fyrir þá áfram. Ef vald þeirra gengur út yfir það sem þér finnst heilbrigt, forðaðu þér. Taktu aldrei þátt í að mata sjálfhverfu og illsku siðleysingjans. Ef þú óttast manninn, ekki rugla því saman við virðingu. Komdu í veg fyrir persónulegt heilsufarstjón og forðaðu þér en mundu að hann (psychopatinn) mun aldrei þola að sjá að þér líði vel hafir þú sýnt þann styrk að yfirgefa hann eða fyrirtækið. Hann mun gera allt til þess að rústa mannorði þínu," segir Martha. Svona menn eru víða í viðskiptalífinu. Þú vinnur jafnvel fyrir þá eða ert svo óheppin að vera gift einum. Börn alkóhólista þurfa að vera sérstaklega á varðbergi því sjálfsmat þeirra er oft á tíðum brenglað. Dæmt fólk eða ólánsfólk leitar að upphefð hjá svona psychopötum vegna eigin vanmáttar. Psychopatar virka svo góðir og klárir og með því að drepa samkeppnina og stela og svíkja verða þeir oft efnamiklir. Sem dæmi um kalrifjaðan siðblindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma sögunnar. Rockefeller opinberaði sjúklegt ástand sitt með orðunum: "God gave me my money."

Níels A. Ársælsson., 1.3.2007 kl. 12:28

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Athyglisvert. Ég myndi nú bara skella þessu upp á blogginu. Það myndur örugglega hjálpa mörgum að leggja saman tvo og tvo varðandi viðskiptalífið hérna.  Baugur og fleiri koma upp í hugann. Ég er sjálfur í málaferlum við einn sukkópatinn, til að fá laun mín fyrir að hanna og setja upp fyrir hann skemmtistað. Einmitt þetta smjaður og yfirborðs göfuglyndi eins og lýst er hér.

Enron er skólabókardæmið. Gaman væri að bera kvótaverðið, kvótakónga saman í ljósi þess skandals.  Eitt af því sem var aðal vaxtabroddur þess skrímslis er að yfirvöld leyfðu þeim að byggja hagtölur sínar á spám um framtíðarvöxt, ekki eins og staðan var þennan og þennan daginn.  Þeir lugu því um styrk sinn fram að lokum. Þeir voru bara risastór loftbóla. Þeir sem töpuðu voru litlu hluthafarnir og starfsfólkið en sukkópatarnir komu milljörðum dollara undan sjálfir. 

Jón Steinar Ragnarsson, 1.3.2007 kl. 21:52

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er verið að höndla með óveiddan fisk í stað hagnaðarspádóma...ergó: Enron er sama dæmið og þetta.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.3.2007 kl. 21:55

10 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Af hverju er ekki verð á olíu td, fimmfallt hærra á Íslandi en í Noregi ? Allur sá þorskur sem veiddur er við strendur Noregs er seldur í samkeppni við Íslenskan þorsk á mjög svipuðum verðum á sömu mörkuðum, nema hvað flutningskostnaður á Íslenskum afurðum inn á markaðinn er þrefallt hærri en frá Noregi. Hvað segir þetta þér ?

Níels A. Ársælsson., 2.3.2007 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband