Leita í fréttum mbl.is

Egill tálgar spýtu

skógar 001Emil hét strákur sem átti heima í Kattholti í Smálöndum. Hann var svo dæmalaust fríður að hann leit helst út fyrir að vera algert englabarn. En enginn skyldi ímynda sér það því Emil gerði fleiri skammarstrik en dagarnir eru í árinu. En Emil gerði líka margt gott og það má segja honum til hróss að hann gerði aldrei sama skammarstrikið nema einu sinni.

Egill minn er ekki síður fríður og tálgar spýtur þrátt fyrir að hann geri aldrei skammarstrik líkt og pabbi sinn. Hm Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stilltir og prúðir feðgar eflaust.

Ragga (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 15:23

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já, alla vega drengirnir.

Níels A. Ársælsson., 30.6.2007 kl. 16:35

3 identicon

Það er þó bót í máli.

Ragga (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 18:08

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já, það væri rosalegt ef þeir væru allir eins og pabbinn. Nei ég segi bara svona

Níels A. Ársælsson., 30.6.2007 kl. 18:10

5 identicon

Allir, hve margir eru þeir drengirnir þínir?

Ragga (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 18:30

6 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þeir eru 5 synir mínir, hver öðrum myndalegri.

Níels A. Ársælsson., 30.6.2007 kl. 20:29

7 identicon

Ríkur þú ert og ég skal alveg trúa því að þeir séu fjallmyndarlegir.

Ég hinsvegar á bara tvo. 

Ragga (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 01:10

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það get ég vitnað um með góðri samvisku, að faðir hans Egils framdi aldrei nein skammarstrik í æsku. Það er og umtalað í hans heimasveit, að aldrei hafi jafn prúður drengur og Níels Ársælsson gengið þar um garða. 

Jóhannes Ragnarsson, 1.7.2007 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband