Leita í fréttum mbl.is

Rommkópar - tálbeita hákarlamanna

theódor friđriksson - hákarlalegur og hákarlamenn 003

Á seinni hluta nítjándu aldar kom til sögunnar ný beita sem íslenzkir hákarlamenn sögđu algjöra byltingu viđ veiđar á hákarli; voru ţađ litlir selkópar vestan frá Breiđafirđi, og voru ţeir látnir liggja í pćkli í heilu lagi í sterku íláti.

En ţađ merkilega viđ ţessa hákarlabeitu var ţađ, ađ selkóparnir voru ekki ristir á hol, heldur voru ţeir ađeins opnađir međ svolítilli stungu, ţegar búiđ var ađ veiđa ţá, og var sterku rommi helt gegnum smuguna inn í kópinn; vínandinn samlagađist innýflunum og blóđinu og fóru út í spikiđ; var ţess og vandlega gćtt , ađ rommiđ fćri ekki út úr skrokknum aftur og vandlega saumađ fyrir opiđ.

theódor friđriksson - hákarlalegur og hákarlamenn 009Ţegar kóparnir voru teknir upp úr ílátinu voru ţeir skornir sundur í smábeitu, og angađi af ţeim lyktin er ţeir voru opnađir, enda var ekki tútt um ađ sumir drykkjumenn langađi til ađ bragđa á romminu, sem inn í ţeim var, ef ţeir voru alveg vitundarlausir af brennivíni. – Ţetta voru nefndir rommkópar og voru ţeir einhver hin allra mesta tálbeita fyrir hákarl.

Á ţessum hákarladöllum  - eins og hákarlaskipin voru nefnd – var útbúnađur allur međ líku móti. Menn beittu hrossakjöti og selspiki. Skinniđ var látiđ tolla viđ selbeiturnar og stungiđ hníf í gegnum hverja beitu; var önnur beitan höfđ af sel og önnur af hrossakjöti – á víxl. –

theódor friđriksson - hákarlalegur og hákarlamenn 006Mörgum beitum var beitt í einu, var ţeim ţrýst upp eftir leggnum á „sókninni“  (hákarlaönglinum), síđast var bugurinn fylltur međ ýmsu gumsi úr hákarlinum, svo sem munnamögum, gallhúsum, hjörtum o. s.frv., og tóbaksmenn gerđu sér ţađ oft ađ reglu ađ hrćkja á beituna um leiđ og sókninni var kastađ fyrir borđ. –

Viđ vađsteininn var járnkeđja, tveggja fađma löng, sem fest var viđ sóknina, en milli vađarhaldsins var kađalspotti á ađ gizka fađmur á lengd, sem kallađur var „bálkur“.

Heimild; Theódór Friđriksson - Hákarlalegur og hákarlamenn.


mbl.is Drýgir dísilolíuna međ hákarlalýsi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Hefđi nú drukkiđ rommiđ en hrossakjötinu hefđi bát beita mín vegna Nilli, góđ greinin hér ađ neđan hjá Urđi. Makrílkvótinn í Fćreysku er 1500 tonn og ţađ er mikiđ ađ makríl hér út af austfjörđum og höfum viđ séđ hann vađandi.

Grétar Rögnvarsson, 19.7.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Níels A. Ársćlsson.

Sćll Grétar.

Já romminu hefđum viđ nú ekki spanderađ í kjaftinn á hákarlinum.

1500 tonn makrílkvótinn í fćreyskri lögsugu ? Ţađ er nú varla til skiptana á allan flotan.

Hef heyrt af stórum göngum af makríl hér inni á fjörđum fyrir vestan.

Hafiđ ţiđ prófađ ađ kasta nót á makrílinn vađandi ?

Níels A. Ársćlsson., 19.7.2008 kl. 17:59

3 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Ţađ er búiđ ađ veiđa ţann kvóta Nilli, nei ţađ er enginn bátur međ nót allir ađ partrolla međ flugdreka á höfuđlínunni, svo mađur sér yfirleitt drekann, ţetta eru svo litlar torfur ađ ég held ađ lítiđ fengist í nót og svo eru ekki til neinar makrílnćtur hér, en norđmenn eru međ langar og sterkar nćtur í ţessu, stćrri en síldarnćtur. Hann sést ekki vađa nema sé alveg renniblíđa og sól, annars mikiđ um 5-10 fm.

Grétar Rögnvarsson, 19.7.2008 kl. 21:10

4 Smámynd: Kolgrima

Ţetta er skemmtilegt, takk fyrir mig

Kolgrima, 21.7.2008 kl. 00:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband