Leita í fréttum mbl.is

Þorpin eru að deyja og dauðinn vakir yfir þeim

Fórnarlömb LÍÚ

Í Fréttablaðinu 17. júlí sl. var sagt frá því að skipa ætti nefnd, sem skila á af sér á kjörtímabilinu, til þess að kanna áhrif kvótakerfisins á landsbyggðina, þrátt fyrir að fyrir liggi skýrsla um málið frá 2001, og allir nema ráðamenn geri sér grein fyrir að kerfið hafi nú þegar lagt mörg sjávarpláss í rúst. Neikvæð áhrif kvótakerfisins á landsbyggðina hafa verið öllum ljós, nema sægreifum og ráðamönnum.

Ég átti erindi á Breiðdalsvík um daginn, þar voru fáir á ferli nema ferðamenn að fylla á bifreiðar sínar - úr sjálfsala. Tvær trillur voru við bryggju en enginn var á ferli við höfnina. Enginn bátur sást á hafinu svo langt sem augað eygði. Þaðan ók ég norður um til Egilsstaða, yfir Hellisheiði eystri og norður fyrir Sléttu til Akureyrar.

Ofan af Hellisheiði eystri var engan bát að sjá til hafs á Héraðsflóa og engan heldur á Vopnafirði. Í kauptúninu var lítið um að vera og ekkert líf við höfnina. Á Bakkaflóa sáust 2 trillur undan Langanesi.

Á Þórshöfn var sama sagan, örfáir bátar við bryggju en ekkert fólk að vinna, enginn fiskur og enginn bátur sást á sjó á Þistilfirði.

Af veginum við Súlur sunnan Raufarhafnar sást enginn bátur á sjó. Raufarhöfn er varla skugginn af sjálfri sér, örfáar trillur en enginn virtist vera í veiðiskap og engin sála var við höfnina. Þarna sá ég Kúbueinkennin, sem ég kalla svo: Húsum ekki haldið við, þau ekki máluð en látin grotna niður. Ein búð, opin fáa tíma á dag, engin dagblöð um helgar og eldsneyti aðeins úr sjálfsala. Þegar ekið var fyrir Melrakkasléttu var heldur engan bát að sjá, ekki heldur í Öxarfirði og á Kópaskeri voru fáir bátar við bryggju og enginn umgangur.

Annað sem einkenndi þessi sjávarþorp var að þar var nær engan fugl að sjá, örfáa hettumáva og fáeinar kríur, það var allt. Þetta var öðruvísi meðan menn stunduðu sjó á Íslandi, þá iðuðu allar hafnir af fugli, sem var að fá sér í gogginn.

Út af Tjörnesi var engan bát að sjá, það var ekki fyrr en kom að Húsavík að einn hvalaskoðunarbátur sást á leið í land með ferðamenn. Talsvert var af trillum í höfninni en lítið um að vera, flestar í biðstöðu vegna kvótaleysis.

Í öllu krepputalinu núna leggja menn til að taka erlent lán til að auka gjaldeyrisforðann. Engum virðist detta í hug að fara í sjóinn og sækja gullið þaðan. Þjóðinni er haldið í kreppu vegna þess að Hafró heldur því fram að það þurfi að "byggja upp þorskstofninn" með friðun, helst veiða ekki neitt. Ráðamenn gleypa ráðleggingarnar hráar þótt löngu hafi verið sýnt fram á að þetta sé líffræðilega ómögulegt. Vitnar þar best um 30 ára árangursleysi þessarar "tilraunar".

Það er á færi sjávarútvegsráðherra að bregða töfrasprota yfir sjávarþorpin og landið allt með því að auka aflaheimildir, stokka allt kerfið upp - og reka þjálfarann. Fyrir hverja er annars verið að reyna að byggja upp fiskstofnana? Það verða brátt engir eftir til þess að veiða.

Heimild; Fréttablaðið 24.07.2008: Höfundur; Jón Kristjánsson fiskifræðingur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Nilli!Bara kvitt fyrir innlit.Ég fylgist með skrifum þínum og alltaf sammála,án þess að gera athugasemdir

Ólafur Ragnarsson, 25.7.2008 kl. 18:00

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sæll Óli og takk fyrir innlitið.

Já sömuleiðis, ég fylgist vel með öllu sem þú skrifa og finnst það mjög gott og fræðandi.

Takk fyrir mig.

Níels A. Ársælsson., 25.7.2008 kl. 18:12

3 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Nilli það er sama hvar þú ferð um landið í dag. Þú sérð hvergi bát eða trillu að veiðum útifyrir. Ég var að koma frá Akranesi í dag yfir Fróðárheiði og sá bara einn bát á sjó í Breiðafirðinum. Og ekki var það veðrið sem var að hindra sjósókn. Hlý skakgola. Þarf fleiri nefndir eða athuganir á afleiðingum kvótakerfissins og afkomuna í t.d. þeim byggðum sem þú varst að nefna. Það mætti halda að sumir hafi hey í höfðinu í stað hugsandi heila!!

Bestu kveðjur af Hellissandi

Sigurbrandur Jakobsson, 25.7.2008 kl. 18:37

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvenær urðu Vestmanneyingar svartir.

Sigurgeir Jónsson, 27.7.2008 kl. 00:27

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hér er öllu satt og rétt lýst, en hér verður eins og fyrri daginn undir þessu kvótakerfi, vitleysunni allt að vopni og svo mun víst verða enn um sinn?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 27.7.2008 kl. 05:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband