Leita í fréttum mbl.is

Sjávarútvegsráðherra LÍÚ

Meðfylgjandi hér neðanmáls er frétt af skip.is, frá því í dag. Þar kemur fram að Einar Vestfirðingur Guðfinnsson, meintur sjávarútvegsráðherra allra íslendinga, er enn eina ferðinna að hórast í kringum "Mannréttindanefnd LÍÚ", og núna í hlutverki gestgjafa LÍÚ fyrir Grænlenskan ráðherra.

Og tilefnið ? Jú auðvitað til að reyna að forða Brimi hf, frá löngu tímabæru gjaldþroti vegna sjálfskapavítis og græðgi stjórnenda félagsins.

Fyrir hverja aðra er "Ofur-Vestfirðingurinn" Einar Guðfinnsson að semja um grálúðukvóta á sama tíma og Vestfirðingafjórðungur er að hrynja til grunna vegna svika ráðherrans við sitt eigið fólk  ?

Ég á þess ósk heitast að Grænlenski ráðherran hundsi með öllu væluliðið íslenzka og gefi þeim drag í afturendann !

Tilvitnun í frétt af skip.is 

Hér á landi er staddur sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherra Grænlands, Finn Karlsen í boði Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra. 

Heimsóknin hófst formlega í gær, þriðjudaginn 12 ágúst. Ráðherrann heimsótti skrifstofu LÍÚ  í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Hans Möller.

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ bauð ráðherrann velkominn. Rædd voru ýmis sameiginleg málefni varðandi fiskveiðar Grænlendinga og Íslendinga svo sem veiðar úr deilistofnum, hvalveiðar og umhverfismerkingar. 

Í máli framkvæmdastjóra LÍÚ kom fram nauðsyn þess að efla samvinnu milli landanna um sameiginleg hagsmunamál.

Ráðherrann upplýsti að ákveðið hafi verið skipa nefnd með fulltrúum Íslands og Grænlands til þess að fjalla sérstaklega um grálúðuveiðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Heyrst hefur að það þurfi að gera hlé á störfum Alþingis, þegar Sjávarútvegsráðherra hristir hausinn..

Jóhann Elíasson, 14.8.2008 kl. 18:00

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Einmitt Jói !

Ætli klingi í honum eins og jólabjöllum ?

Níels A. Ársælsson., 14.8.2008 kl. 18:12

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 14.8.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Hér er stuð, sammála þessu....

Hallgrímur Guðmundsson, 14.8.2008 kl. 23:45

5 Smámynd: Sigurður Jón Hreinsson

Ég hef nú oft spáð í það, að fátt sé meira skylt við kommúnisma en einmitt hið íslenska kvótakerfi.  Staðföst varðstaða LÍÚ-hundsins gerir hann þá væntanlega að afturhaldskommatitti no.1.......

Sigurður Jón Hreinsson, 15.8.2008 kl. 00:09

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Nákvæmlega Sigurður, kvótakerfi Framsóknar og andskotans er svo auðsjáanlega í beinan karllegg frá kommúnisma, ekkert minna en það. En LÍjúgarinn telur sig vera akkúrat á hinum vængnum, það er oft erfitt að greina á milli..?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.8.2008 kl. 12:39

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Glæsilegt. Nú þarf bara að kæra Framsóknarflokkinn og loka honum með skömm.

Sigurður Sigurðsson, 15.8.2008 kl. 17:50

8 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi!Fastir liðir að venju,Semsagt sammála þér í einu og öllu.Kvitta hér einnig fyrir innlit að undanförnu.Sértu ávallt kært kvadddur

Ólafur Ragnarsson, 16.8.2008 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband