Leita í fréttum mbl.is

Litla LÍÚ fundar í minnisvarða íslenzkra kapítalista

Vinsamleg ábending til aðalfundar LS:

Fiskistofa (Gestapó LÍÚ) fær kr, 1,7 milljarð á fjárlögum þessa árs.

Öllum sem við sjávarútveg starfa á Íslandi og vilja vita og sjá er ljóst að Fiskistofa er ónýtt og óþarft apparat með öllu.

Fulltrúar á aðalfundi LS sendi nú stjórnvöldum áskorun um að leggja Fiskistofu niður og færa þá litlu starfsemi sem vit er í innan stofnunarinnar (veiðieftirlit og skýrslugerð) til Landhelgisgæslu Íslands.

Landhelgisgæsla Íslands er fjársvelt stofnun en hefur á að skipa öllum þeim mannskap og tækjabúnaði sem völ er á til að sinna störfum Fiskistofu og strandgæslu.

Með þessu fyrirkomulagi mundu sparast gríðarlegir fjármuinir og nýting á mannskap og tækjum Landhelgisgæslunnar yrði eins og hann ætti að vera.

Nýtt nafn á sameinaðri stofnun gæti verið "Strandgæslan".


mbl.is Sjávarútvegurinn skuldum vafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Fiskistofa hefur þanist ótrúlega út. Ég man þegar verið var að koma þessari stofnun á fót þá vildu nokkur sveitarfélög á landsbyggðinni fá hana til sín en svörin þá voru þau að þetta yrði svo fámenn stofnun að enginn hefði hag af að hýsa hana.

Haraldur Bjarnason, 23.10.2008 kl. 13:58

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Góð hugmynd

Sigurður Þórðarson, 23.10.2008 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband