Leita í fréttum mbl.is

Átumein í líkama mannfélagsins

ómaginn„Auðvaldið, sem lifir á ránglæti, heimsku og yfirgángi, þarf ekki að ætla sér þá dul að kenna oss, upplýstum alþýðumönnum, neinn sannleika.

Þeir sem halda fyrir yður gæðum lífsins og banna yður að vinna nytjar jarðarinnar, það eru fjandmenn Guðs og yðar, og yður ber til þess heilög skylda að útmá þá af ásýnd jarðar.

Þeir eru átumein í líkama mannfélagsins. Þeirra vegna eru börn yðar blóðlaus og mergsogin. Þeir hafa hrifsað brauðið frá munnum barna vorra og rænt síðustu skyrtunni af foreldrum vorum örvasa” Tilvitnun í Alþýðubókina.

Ég vil minna á orð Sverris Hermannssonar sem hann viðhefur í æviminningum sínum „Skuldaskil“ bls 47. Tilvitnun: „Það er mín skoðun að Finnur Ingólfsson sé einn gerspiltasti stjórnmálamaður á Íslandi sem sögur fara af.“


mbl.is Vilja opinbera rannsókn á fjárþurrð Giftar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Jónsson

Níels: ég er sammála Sverrir, og tel að leita þurfi langt um heiminn til að finna jafningja í spillingu við Finn, en hann mun finnast von bráðar, og það sem meira er hann verður sennilegast líka Íslendingur.

Magnús Jónsson, 28.11.2008 kl. 23:39

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi.Tek undir ofanskrifað.Kvitta fyrir mörg innlit,Kært kvadur

Ólafur Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 01:12

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Finnur Ingólfsson er án nokkurs vafa spilltasti stjórnmálamaður þóððarinnar fyrr og síðar. Sá eini sem gæti ef til vill skákað þessu auðvirðilega mannkerti í spillingu væri flokksbróðir hans, Halldór Ásgrímsson.

Vonandi finna vísindamenn bráðlega upp mótefni gegn svona plágum.

Jóhannes Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband