Leita í fréttum mbl.is

Launhelgi lyganna

króna

Vona að Steingrími J. Sigfússyni auðnist að taka löngu tímabæra ákvörðun um að stöðva loðnuveiðar í eitt skipti fyrir öll eins og gert hefur verið í nánast öllum löndum þar sem ábyrg umgengni um lífríki hafsins er í hávegum höfð.

Loðnuveiðar eru glæpur gagnvart öllu lífríki hafsins og fólkinu í sjávarbyggðunum.

Lífríki hafsins þarf nauðsynlega á loðnunni að halda en hún er ekki til handa gráðugum ofstækismönnum gjaldþrota brotajárns og tortýminga útgerða.

Eftir að farið var að veiða loðnu í gríðarlegu magni og þá einkum í flottroll hefur varla komið loðna inn á Breiðafjörð til hryggningar. Hún hefur einfaldlega verið drepin og torfunum splundrað.

Grænþörungur sem er aðalfæða hörpudisksins nærist aðalega á næringarsúpu úr rotnandi loðnu sem verður til við það er loðna hryggnir og deyr.

Beint samhengi er á milli loðnuveiða og hruns hörpuskeljarstofnsins á Breiðafirði. Hörpudiskurinn hafði ekki rétta næringu og sýktist af þeim sökum og stofninn hrundi.

Hörpudiskurinn lifir á svifþörungum og smáum lífrænum ögnum sem berast með straumum nálægt sjávarbotninum. Hann heldur sig mest á hörðum botni á 15-80 m dýpi, einkum þar sem straumar bera að gnótt næringarefna.

Grænþörungar og plöntur geyma forðanæringu á formi sterkju í frumu-líffærum sem nefnast plastíð. Þetta eru einu hópar lífvera sem gera það.


mbl.is Gefur út rannsóknarkvóta í loðnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Og ég sem hélt að það hefði verið vegna þess að ég borðaði svo mikið af honum þegar ég fór í sælkerasiglinguna um Breiðafjöðrinn um árið Ég treysti mér hins vegar ekki til að taka neina vitræna afstöðu til þess sem þú segir hér og viðurkenni bara algjöra fáfræði mína í sambandi við þetta málefni.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 10.2.2009 kl. 04:18

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það færi betur, Nilli, að sem flestir kynntu sér þetta mál. Loðnuveiðar eru að mínu mati stórhættulegar vistkerfi hafsins kringum landið og reyndar leikur enginn vafi á því.

Jóhannes Ragnarsson, 10.2.2009 kl. 10:58

3 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Hér eru settar fram afar forvitnilegar kenningar um hrun hörpuskelsstofnins í Breiðafirði - þessari fornu matarkistu!

Í öllu falli held ég að Steingrímur J. hafi vanið sig á þau vinnubrögð að taka ekki ákvarðanir nema að bera þær undir fagmenn og vísindamenn.Eg segi eins og Rakel hér að ofan að ég þekkti ekki þetta samhengi - en eyðing ákveðinna tegunda, hefur ævinlega í för með sér, hrun á annarri og fleiri tegundum.

Það er grafalvarlegt mál.

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 15.2.2009 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband