Leita í fréttum mbl.is

Ægileg dýrtíð og stórkostlegt verðfall peninga

denmark old map 1

Hin síðustu ár hefur verðbólga vaxið óðfluga og dýrtíð orðið svo mikil, að annars eins eru ekki dæmi. Veldur því margt, hart árferði innanlands og skortur á innlendri vöru, siglingateppa og litlar vörur í verzlunum og síðast en ekki sízt stórkostlegt gengisfall, sem leitt hefur af sívaxandi skuldasöfnun danska ríkisins og óhemju seðlaútgáfu.

Er danska ríkið nú komið í greiðsluþrot og hefur verið ákveðið að stofna nýjan banka, ríkisbanka, er skal innleysa hina gömlu seðla (kúrantdalina) með nýjum seðlum. Er ákveðið að menn fái aðeins 1/10 af nafnverði gömlu seðlanna í nýjum seðlum.

IcelandPA1-1rikisdalur-1789-donatedmt_b

Sem dæmi um vöruverð hér á landi síðastliðið haust má geta þess, að einn fjórðungur af smjöri var seldur á 6 ríkisdali, sauður kostaði 10 ríkisdali og kýr 60 rd. Nú hefur verðbólga vaxið enn, og er enginn eins dals bankaseðill tekinn sunnanlands á meira en 5 fiska.

Embættismenn og aðrir launamenn, sem ekki hafa annað en peningaseðla fyrir sig að bera, eru svo aðþrengdir, að þeim gengur fullörðugt að afla brýnustu lífsnauðsynja. Eru þess dæmi, að kaupmenn hafa neitað að selja matvæli, hafi átt að gjalda með seðlum.

ísland old map

Castenskiold stiftamtmaður hefur gripið til þess neyðarúrræðis að sleppa öllum föngum úr hegningarhúsinu í Reykjavík og senda hvern og einn heim í sína sveit. Gerði hann stjórninni grein fyrir þessari ráðstöfun og lét svo um mælt, að hungursneyð hafi verið svo mikil í landinu, að búast hefði mátt við, að menn fremdu glæpi, aðeins til þess að fá vist í hegningarhúsinu.

ríkisdalur 2

Einnig kvaðst hann hafa gert þetta til þess að hjálpa þeim sem verst voru staddir um matvæli, og miðlað svo mörgum sem auðið reyndist af birgðum tugthússins. Lagði stiftamtmaður til, að öllum föngum yrði að fullu gefin upp refsing.

Ísland anno, 1813-1814. 


mbl.is Staðgreiðslan 1,3 milljörðum hærri til sveitarfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband