Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Og svo kemur þetta niður á aumingja frændum vorum Grænlendingum sem ekki fá að flytja út sínar selaafurðir þrátt fyrir að notast við skotvopn við sínar veiðar.

Bendi fólki á að þetta er hættulegt fordæmi um viðskiptaþvinganir sem munu í síauknu mæli einkenna heimsverslun komandi áratugs á svipaðan hátt og gerist á 4. áratuginum.

Héðinn Björnsson, 5.5.2009 kl. 11:55

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Er reyndar á því að það eigi að skylda fólk til að borða þau dýr sem það drepur og ætti það að minnka bæði rányrkju og vilja fólks til að taka þátt í hernaði hverskonar.

Héðinn Björnsson, 5.5.2009 kl. 11:59

3 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

ohhh .. sjá litlu sætu selina í þessu áróðursvideói .. þeir eru svo sætir .. ohhh .. algjörar dúllur...

Hættum að drepa allt sem er sætt og krútt,  byrjum á lömbunum .. og kjúklingunum, þau eru sæt er það ekki ?

Jóhannes H. Laxdal, 5.5.2009 kl. 19:42

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sælir báðir.

Ég hef persónulega ekkert á móti selveiðum og er þeim reyndar mjög fylgjandi, en aðferðirnar sem notaðar eru verða að vera mannsæmandi.

Annað kemur ekki til greina ef halda á áfram að drepa selkópa á ísnum vegna skinanna.

Einnig þarf að fjarlægja skrokkanna en ekki skilja þá eftir á ísnum.

Níels A. Ársælsson., 5.5.2009 kl. 20:12

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Reyndar hafa Greenpeace-menn viðurkennt að hafa sviðsett áróðurskvikmyndir af seladrápum en hvað sem því líður VERÐUR að ganga hreint til verks það er með öllu óásættanlegt að skilja hræin eftir á ísnum.  Það er bara ekki í myndinni annað en að standa mannsæmandi að ÖLLUM veiðum sama hvaða nafni þær nefnast.

Jóhann Elíasson, 5.5.2009 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband