Leita í fréttum mbl.is

Ekki um misskilning að ræða hjá ráðherra

Haabrann9d

Þessar athugasemdir Þorsteins Más Baldvinnssonar vegna ummæla hæstvirts sjávarútvegsráðherra Jóns Bjarnasonar eru útúrsnúningar og dylgjur eins og við var að búast úr þeirri áttinni.

Það vekur athygli mína í þessu viðtali við Máa að hann minnist ekki á aflaheimildir skipanna heldur einungis á skipin sjálf og lætur þar við sitja.

Hér má sjá dóm Hæstaréttar frá 2005 sem staðfestir grunsemdir Jóns Bjarnasonar og gerir röksemdir Þorsteins Más að engu.

 


mbl.is Segir um misskilning sé að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Þú hlýtur að gera þér grein fyrir því að málið snérist um eignarhald útlendinga á auðlindinni.

Sem er hinn hrapalegast miskilningur hæstvirts sjávarútvegsráðherra þar sem útlendingar neyðast til að selja það aftur innan örfárra mánaða ef þeir eignast slíkt og mega þeir ekki bíða betri tíma með verð eða standa í útgerð fram að sölu.

Enn ein tilraun ráðherra til að slá ryki í augu fólks til að beina þeim frá sannleikanum.

Carl Jóhann Granz, 22.9.2009 kl. 11:39

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þetta er bull í þér Carl

Þetta kemur ekkert þessum röksemdum þínum við.

Málið snýst um veðsvik.

Níels A. Ársælsson., 22.9.2009 kl. 12:01

3 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Hverskonar veðsvik eru þetta þá ?

Carl Jóhann Granz, 22.9.2009 kl. 12:10

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Spurðu Seðlabanka Evrópu og íslenzka dómstóla að því.

Níels A. Ársælsson., 22.9.2009 kl. 12:23

5 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Ég er sammála þér Níels. Þorsteinn er enn eina ferðina að gera það sem Ameríkanar kalla "doing lip service" - eða talking the talk í stað þess að walk the walk.

Á íslensku útleggst það einhvern veginn þannig - að segja eitt en gera annað.

Anna Karlsdóttir, 23.9.2009 kl. 10:52

6 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það verður gaman að sjá viðbrögð alþjóðasamfélagsins og erlenda kröfuhafa þegar þeir átta sig á því að stunduð hafa verið stórfelld veðsvik sem öll elítan kvittar svo fyrir.

Hallgrímur Guðmundsson, 24.9.2009 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband