Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Usāmah bin Muhammad bin 'Awad bin Lādin

Osama bin Laden

Ussama eða Osama bin Laden fæddist líklega árið 1957 í Riyadh í Sádí-Arabíu. Ekki er vitað með vissu hvaða dag hann er fæddur en 10. mars og 30. júlí 1957 heyrast oftast nefndir.

Bin Laden því 50 ára. Fullt nafn hans er Usāmah bin Muhammad bin 'Awad bin Lādin en orðið bin þýðir sonur á arabísku.

Ussama er sagður 16. eða 27. sonur Mohammed bin Laden í einni ríkustu fjölskyldu Sádi-Arabíu.

Á vefsíðu Alríkislögreglu Bandaríkjanna er bin Laden lýst sem hávöxnum (193-198 cm) og grönnum manni sem vegur um 75 kg. Hann er örvhentur og gengur venjulega með staf og hvítan vefjarhött, túrban. Talið er að bin Laden þjáist af lifrarsjúkdómi.


mbl.is Bin Laden boðar nýtt heilagt stríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þöggunn LÍÚ og Háskólans á Akureyri

leiguliðar líú

LÍÚ kaupir sér opinberan stuðning Háskólans á Akureyri til að kenna áfram hvernig á að klúðra fiskveiðistjórninni enn betur. 

LÍÚ svífst einskis – og kaupir nú opinberan stuðning við allan ósómann í fiskveiðistjórninni: mistökin um uppbyggingu þorskstofnsins, brottkast, framhjálöndun, eignarupptöku fjölskyldna í sjávarbyggðum og eyðingu byggða. 

Man fólk ekki hvernig Fiskvinnsluskólinn og Stýrimannaskólinn á Ísafirði, Dalvík, og Vestmannaeyjum  - frábærir skólar voru eyðilagðir og í stað þess er plottað  eitthvert samsæri um kennslu í kvótafræðum LÍÚ í Háskólunum á Akureyri og Háskóla Íslands þar sem blóðpeningar  og “gjafir” LÍÚ gegna lykilhlutverki – við útbreiðslu fræða – sem eru að eyða bæði  þorskstofninum og sjávarbyggðum kring um landið.

Það er alvarleg siðblinda hjá yfirstjórn Háskóla Akureyrar að taka þátt í  að kenna þennan ósóma - gegn greiðslu  45 milljón blóðpeninga.

Sjá link; http://www.skip.is/frettir/2007/12/21/nr/11465


تیتر خبر کوتاه ولی

Bhutto

Andlitsmynd af leiðtoga pakistanska Þjóðarflokksins, Beneazir Bhutto, sem tekin var á fréttamannafundi þann 7. nóvember 1985 á Carlton hótelinu í Cannes.

Hún var elsta dóttir Zulfikar Ali Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, fædd árið 1953 og lagði stund á nám við Harvard háskóla. Hún varð leiðstogi Pakistanska þjóðarflokksins árið 1979 eftir að faðir hennar var hengdur.

Benazir Bhutto eyddi sjö árum í útlegð og fangelsi. Hún snéri aftur til Pakistan árið 1986 og var kjörin forsætisráðherra landsins í apríl 1987. Hún sór embættiseið sem forsætisráðherra 2. desember 1988, fyrst kvenna til að gegna því embætti í íslömsku ríki.

Hún var endurkjörin 1993 en svift embætti sínu þremur árum seinna vegna ásakana um spillingu vegna samninga sem gerðir voru við svissnesk fyrirtæki í valdatíð hennar.

Henni var vikið úr ríkistjórn 1996 og fór í útlegð til Bretlands. Eiginmaður hennar, Asif Ali Zardari, eyddi átta árum í fangelsi vegna ásakana um spillingu en var látinn laus í nóvember árið 2004.


mbl.is Lík Bhutto flutt til Larkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestfizkar landnáms hveitikökur

vestfizkar hveitikökur 005

Við karlarnir í minni fjölskyldu erum fullir áhuga um baksturinn líkt og bresku konurnar. Ég veit ekki hvað þeim finndist Nigellu Lawson og Deliu Smith um uppskrift formæðra okkar af vestfizku hveitikökunum en fyrir minn smekk eru hveitikökurnar nauðsynlegur hluti af jólahaldinu.

Vestfizkar landnáms hveitikökur:

500 gr hveiti

3 1/2 tsk lyftiduft

1 tsk salt

1 msk sykur

50 gr brætt smjörlíki

3 1/2 - 4 dl nýmjólk eða súrmjólk.

Mjólkin volgruð og smjörlíki brætt og kælt að líkamshita. Þurrefnum blandað saman, mjólkinni og smjörlíkinu dreypt saman við hægt meðan hnoðað er. Bezt er að geyma deigið undir loki í kæli yfir nótt.

Deiginu skipt upp í 5-6 kúlur og flattar út hringlaga. Nota steikapönnu með þykkum botni og hitinn á hellunni á að vera 75-80%. Sett er smjörlíkisklípa á pönnuna við hverja hveitiköku.

Hveitikökurnar borðist volgar með miklu íslenzku smjeri og hangiketi eða kindakæfu.

 

 

 


mbl.is Konurnar sækja í baksturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

S.t Romanus H-223 ?

stromanus

Klussið er áberandi á luningunni undir fremstu stoð við bátapallinn. Ekkert er vitað um afdrif S.t Romanus H-223, en skipið hvarf í janúar 1968 að talið er NA af Íslandi. Kingston Periot H-591, hvarf í sama veðri og ekki er vitað nákvæmlega um örlög þess togara heldur. Ég skoðaði myndir af Kingston Periot, en fæ ekki séð nein klussholt á lunningunum á honum.


mbl.is Fengu hluta af skipi í trollið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stór skata og tindaskata (lóðskata eða tindabykkja )

skata

tindaskata

Stór skatan hin eina og sanna getur orðið feiknastór, segir sagan að veiðst hafi skötur sem verið hafa yfir 2 metrar á breidd, og þá um og yfir 3 metrar á lengd.

Eins og flestar aðrar skötur er þessi tegund ljós á kvið, en dökkbrún eða móleit að ofan nokkurnveginn ómynstruð og einlit.Hún ber mun færri gadda en frænka hennar Tindabykkjan, gaddar skötunnar eru nær eingöngu á hala hennar þeir stærstu í beinni röð eftir miðju efra borði halans.

Fullorðnar skötur eru rándýr sem leggjast á ýmsa aðra fiska en ungar skötur þurfa sjálfsagt að láta sér nægja smærri dýr og orma af mismunandi tagi. Skötur hafa lengi verið á borðum íslendinga, og hefur vestfirska þorláksmessuskatan náð að festa sig í sessi um land allt þó sennilega sé stöðugt minna etið af skötu aðra daga ársins.

Tindaskatan (vestfizka heitið er; lóðskata eða tindabykkja) er einna algengust þeirra fjölmörgu skötutegunda sem fundist hafa á íslandsmiðum.Tindaskatan er oft kölluð tindabykkja og ber hún nöfn sín með réttu, því á efri hlið er hún alsett göddum stórum og smáum, þeir stærstu eru á hala, miðju baki og umhverfis augun.

Tindaskatan verður ekki stór miðað við margar skötutegundir en hún getur þó stundum slagað hátt í metra að lengd.Kviðurinn er ljós en á baki er hún móleit og nokkuð breytileg.


mbl.is Skatan smökkuð í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landnámabók

fjöruferð 037

Þórólfur spör kom út með Örlygi og nam Patreksfjörð fyrir vestan og víkur fyrir vestan Barð nema Kollsvík; þar bjó Kollur fóstbróðir Örlygs. Þórólfur nam og Keflavík fyrir sunnan Barð og bjó að Hvallátrum. Þeir Nesja-Knjúkur og Ingólfur hinn sterki og Geirþjófur voru synir Þórólfs sparrar. Þórarna var dóttir Ingólfs, er Þorsteinn Öddleifsson.

Þorbjörn tálkni og Þorbjörn skúma, synir Böðvars blöðruskalla, komu út með Örlygi; þeir námu Patreksfjörð hálfan og Tálknafjörð allan til Kópaness.

Ketill ilbreiður, son Þorbjarnar tálkna, nam dali alla frá Kópanesi til Dufansdals; hann gaf Þórörnu dóttur sína Hergilsi hnapprass; réðst hann þá suður í Breiðafjörð og nam Berufjörð hjá Reykjanesi.

Örn hét maður ágætur; hann var frændi Geirmundar heljarskinns; hann fór af Rogalandi fyrir ofríki Haralds konungs. Hann nam land í Arnarfirði svo vítt sem hann vildi; hann sat um veturinn á Tjaldanesi, því að þar gekk eigi sól af um skammdegi.

Ánn rauðfeldur, son Gríms loðinkinna úr Hrafnistu og son Helgu dóttur Ánar bogsveigis, varð missáttur við Harald konung hinn hárfagra og fór því úr landi í vesturvíking; hann herjaði á Írland og fékk þar Grélaðar dóttur Bjartmars jarls. Þau fóru til Íslands og komu í Arnarfjörð vetri síðar en Örn. Ánn var hinn fyrsta vetur í Dufansdal; þar þótti Grélöðu illa ilmað úr jörðu.

Örn spurði til Hámundar heljarskinns frænda síns norður í Eyjafirði, og fýstist hann þangað; því seldi hann Áni rauðfeld lönd öll milli Langaness og Stapa. Ánn gerði bú á Eyri; þar þótti Grélöðu hunangsilmur úr grasi.

Dufann var leysingi Ánar; hann bjó eftir í Dufansdal.

Bjartmar var son Ánar, faðir Végesta tveggja og Helga, föður Þuríðar arnkötlu, er átti Hergils; þeirra dóttir var Þuríður arnkatla, er átti Helgi Eyþjófsson. Þórhildur var dóttir Bjartmars, er átti Vésteinn Végeirsson. Vésteinn og Auður voru börn þeirra. Hjallkár var leysingi Ánar; hans son var Björn þræll Bjartmars. Hann gaf Birni frelsi. Þá græddi hann fé, en Végestur vandaði um og lagði hann spjóti í gegnum, en Björn laust hann með grefi til bana.

Geirþjófur Valþjófsson nam land í Arnarfirði, Fossfjörð, Reykjarfjörð, Trostansfjörð, Geirþjófsfjörð, og bjó í Geirþjófsfirði; hann átti Valgerði, dóttur Úlfs hins skjálga. Þeirra son var Högni; hann átti Auði, dóttur Óláfs jafnakolls og Þóru Gunnsteinsdóttur. Atli var son þeirra; hann átti Þuríði Þorleifsdóttur, Eyvindarsonar knés og Þuríðar rymgyltu. Þorleifur átti Gró dóttur Þórólfs brækis. Höskuldur var son Atla, faðir (Atla, föður) Bárðar hins svarta.


mbl.is Leynihópurinn gleður á Patró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

O Lavrador de Cafe

lavrador-de-cafe

Á 20. öldini skapaði Candido Portinari (1903-1962) einstakan, brasilískan stíl með því að blanda saman óhlutstæðum aðferðum Evrópumanna og landslagi Brasilíu. 


mbl.is Verðmætum verkum stolið í Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir á aðgerðir Fiskistofu

gestapo

Ég tel að sakborningarnir í Glitnismálinu hafi sloppið vel miðað við þann dóm sem ég hlaut fyrir að henda 53 smá þorskum í sjóinn fyrir framan myndavélar.

Geri aðrir betur; Sekt kr, 1.700.000,00.- máls og dómskostnaður kr, 1.200.000,00.- að auki þriggja mánaða fangelsi og níu mánaða veiðileyfissvifting. Halelúla !

Yndisleg stofnun Fiskistofa, boðberar réttlætis og mannkærleiks. Guð launi þessum góðu mönnum.

 

Ísland 1000 ár !


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir að nýta sér kerfisvillu banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daniel Defoe

defoe

Skáldsagan um ævintýri "Róbinson Krúsó" var gefin út árið 1719 og er eftir rithöfundinn Daniel Defoe (1660-1731). Sagan varð strax mjög vinsæl og margir muna eftir nafninu Róbinson Krúsó og nafni einkaþræls Krúsós sem hét "Fjárdagur". 

Upphaflega hét sagan: "The Life and Strange Surprising Adventures of Robinson Crusoe, of York, Mariner, written by himself".


mbl.is Bannar Frjádag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband