Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Vestfirðingar hefji strax veiðar utan kvóta úr flökkustofni þorsks frá A-Grænlandi ?

Nú ættu Vestfirðingar að bregðast hart við og hefja strax veiðar á þorski utan kvóta á flökkustofni (Grænlandsþorski) þeim sem Hafró hefur lokseins uppgvötað með DNA ransóknum.

Vestfizkir sjómenn hafa að vísu um aldir vitað af þessum þorski en eins og alþjóð veit þá lítur akademíska háskólafólkið fyrir sunnan ekki á vestfizka sjómenn sem viti borið fólk heldur sem heimskar skepnur í mannsmynd.

Flökkustofn þorsks frá Grænlandi lýtur vart öðrum lögmálum í röksemdarfærslum stjórnvalda og LÍÚ heldur en veiðar (brotajárns og ryksuguskipa LÍÚ) á flökkustofni makríls úti fyrir Austfjörðum

Læt hér fylgja stutta frétt um þetta efni af skip.is, frá því í gær 28.08.2008.

Fiskifræðingar hjá Hafrannsóknastofnun telja nú líklegt að þorskur gangi frá Vestfjarðamiðum yfir á Dohrnbankasvæðið á sumrin í ætisleit en komi síðan til baka á hrygningarstöðvar við Ísland í febrúar, að því er Björn Ævarr Steinarsson, sviðsstjóri veiðiráðgjafarsviðs Hafrannsóknastofnunar, sagði í samtali við Fiskifréttir.

Björn Ævarr sagði jafnframt að Hafrannsóknastofnun hefði haft samráð og samstarf við grænlensku hafrannsóknastofnunina um rannsóknir á þorski við Austur-Grænland. Hafró mun leggja til um 100 rafeindamerki til merkinga á þorski við Austur-Grænland sem fram fara á næstunni um borð í grænlenska rannsóknaskipinu Paamiut.

Sjá nánar ítarlega umfjöllun um tengsl þorsks við Ísland og Grænland í nýjustu Fiskifréttum þar sem  rætt er við Einar Hjörleifsson fiskifræðing auk Björns Ævars Steinarsson.


Sænskir sunnudagaskóladrengir

Þetta lítiræði sænsku sjómannana sem þeir eru sakaðir um að hafa tegunda-tilfært þykir nú ekki þess vert að hafa á orði á Íslandi.

Óskapnaðurinn varðandi tegunda-tilfærslur á vigtarnótum, framhjálandanir og skipulagt brottkast ýmissa "meiriháttar" (að eigin áliti) íslenzkra útgerðamanna fengi fulltrúa FAO og heimsbyggðina alla til að súpa hveljur í langan tíma.

Hætt er við að kvótakerfið íslenzka hrynji á einni nóttu ef réttir aðilar fást til að segja frá hlutunum eins og þeir eru í reynd !

Ekki mun duga að banka upp á hjá Fiskistofu (The Icelandic Cota Smink Company ohf) en þar ráða ríkjum kónar sem klárlega létu frekar drepa sig heldur en að segja sannleikann í þessu máli ! 


mbl.is Sænskir sjómenn ákærðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tapa stórt þrátt fyrir gríðarleg opinber framlög (ríkisstyrkir í formi leigukvóta)

Skip Granda hf.

Nafn/Heimahöfn/ þ,ígild,t.+/-
Ásbjörn RE-50Reykjavík -1.085.879 
Brettingur NS-50Vopnafjörður  0 
Faxi RE-9Reykjavík -2.946.000 
Helga María AK-16Akranes -   426.000 
Höfrungur III AK-250Akranes +  458.000 
Ingunn AK-150Akranes +  100.000 
Lundey NS-14Reykjavík -     55.000 
Ottó N Þorláksson RE-203Reykjavík +1.505.527 
Sturlaugur H Böðvarsson AK-10Akranes -    828.000 
Venus HF-519Hafnarfjörður -    148.000 
Víkingur AK-100Akranes +     34.000 
Örfirisey RE-4Reykjavík -      91.000 
Þerney RE-101Reykjavík 

-    254.000

 

Fram kemur á vef fiskistofa.is (dags, 28.08.2008) að skip Granda hf, hafa látið frá sér aflaheimildir innan fiskveiðiársins 2007-2008, sem nemur -3.735 tonnum í þorskígildum talið umfram það sem fært er á skip félagsins.


mbl.is Mikið tap á rekstri HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestfirðingum hefur fækkað um 1.400 manns á áratug

skógar 019

Vestfirðingar voru 7.299 talsins þann 1. janúar sl., samkvæmt tölum Hagstofunnar og hefur þeim fækkað um tæplega 1.400 manns á síðustu tíu árum.

Rúmlega 500 erlendir ríkisborgarar eru búsettir í fjórðungnum, þar af eru Pólverjar fjölmennastir eða 361 talsins.

Hefur þeim fjölgað lítillega undanfarinn áratug en árið 1998 voru íbúar með erlent ríkisfang í fjórðunginum 461 eða 0,5%.

Mannfjöldanum er nokkuð jafnt skipt á milli kynjanna; 3.757 karlmenn og 3.542 konur.

Frétt af bb.is


Vélstjórar brjóti upp ofbeldiskerfi LÍÚ

Sjómannadagsræða Guðmundar Ragnarssonar formanns félags Vélstjóra-og málmtæknimanna er hér á heimasíðu VM.

"Talandi um auðlindina í sjónum, þá hef ég séð ýmislegt á mínum starfsferli varðandi umgengnina á henni. Má þar t.d. nefna smuguveiðarnar. Á þessum tíma hef ég verið þátttakandi í að henda þó nokkrum tonnum af fiski í sjóinn. Það er bara partur af raunveruleikanum, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Allt það upphlaup sem hefur orðið í fjölmiðlum á undanförnum árum, hafi brottkast komið til umræðu, er með eindæmum og hlægilegt fyrir okkur sem til þekkja.

Allir sverja af sér brottkastið, engin vill kannast við þessar staðreyndir, þó allir viti af því sem við þetta starfa. Þetta eru raunverulegir hlutir sem bitna fyrr eða síðar á okkur sjálfum. Þetta er ekkert flókið, við erum með fiskveiðistjórnunarkerfi og við erum með arðsemiskröfur í rekstri sjávarútvegsins. Við erum allir sekir um þetta brottkast, stjórnmálamenn sem setja leikreglurnar, útgerðarmenn sem þurfa að ná endum saman og sjómenn sem eru í þessu til að hafa sem mest upp úr sér.

Ástæða þess að ég tala um þetta hér er að við síðustu ákvörðun á fiskveiðiheimildum í þorski, urðu þau mestu mistök sem við höfum gert sem snúa að umgengni um auðlindina í hafinu. Til að arðsemi útgerðarinnar gangi upp, fórum við að sækja í ýsuna sem aldrei fyrr, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir stofninn. Til að ná í þessa ýsu hefur flotinn legið á grunnslóð þar sem smáþorskurinn er að vaxa og engin fórnar þorskkvóta á verðlausan smáfisk.

Það sem ég spyr mig að er hvort við höfum ekki með síðasta niðurskurði í þorskveiðunum verið að eyðileggja meira fyrir okkur, en við erum að byggja upp? Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að vera með mikinn niðurskurð í einni tegund, til að geta haft möguleika að ná í aðra, vegna þess að þessar fisktegundir synda á sömu miðum á sama tíma. Því stjórnum við ekki.

Hafrannsóknir eru ung fræðigrein, það verður að hafa það hugfast þegar verið er að gagnrýna þeirra niðurstöður. Að mínu viti eru þetta einu haldbæru vísindin sem við getum farið eftir. Því miður virðist árangurinn af öllum þessum friðunum í áratugi vera jafn fjarlægur og þegar við hófum fiskveiðistjórnunina.

Það er athyglisvert að í flest öllum fiskveiðistjórnunarkerfum í Norður- Atlantshafi er verið að veiða talsvert minna úr stofnunum í dag en þegar friðunin hófst, þó svo að hún hafi staðið yfir í áratugi. Það sem ég vil leggja áherslu á er að framkvæmd friðunarinnar er ekki síður mikilvæg en friðunin sjálf, svo hlutirnir gangi upp og ekki verði stórslys í vistkerfinu við framkvæmd hennar".


mbl.is VM: Gengur illa að fá sjómenn með réttindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öl alda sonum

Forfeður vorir komu út hingað austan um haf með ýmsa vitneskju í farangri sínum. Til að mynda gerðu þeir sér grein fyrir bölvun drykkjuskapar. Alkunn eru erindin um ofdrykkjuna í Hávamálum.

Byrði betri

ber-at maður brautu að

en sé mannvit mikið,

vegnest verra

vegur-a hann velli að

en sé ofdrykkja öls.

Er-a svo gott

sem gott kveða

öl alda sonum,

því að færra veit

en fleira drekkur

síns til geðs gumi.


mbl.is Afengisbanni aflétt á Hyatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveggja og hálfs mánaða laun Hreiðars Más og hálfur kaupauki Lárusar Wendings

Þetta er góður árangur hjá áhöfn Venusar og óska ég þeim áframhaldandi velfarnaðar í störfum sínum.

Ég get ekki varist því að leiða hugann að orðum Guðmundar Jónssonar skipstjóra Venusar frá því sl, vetur er hann við fréttamann sjónvarps lét þau orð falla að afrakstur áhafnar Venusar væri nú ekki mikill miðað við einn "bankastjóra ræfill", sem fengið hafði í kaupauka kr, 300 milljónir bara fyrir það eitt að mæta fyrsta daginn í vinnunna.

Nú berast fréttir af stórfeldum ágreiningi LÍÚ og sjómannaforystunnar vegna kröfu þess fyrrnefnda að áhafnir fiskiskipa beri þyngr byrðar vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu.

Þetta gerist á sama tíma og ljóst er að olíufélögin eru með 37% álagningu sem var á sama tíma fyrir ári síðan 11%.

Er ekki nóg komið af vitleysunni í kringum LÍÚ og tími til kominn að leysa þessi hryðjuverkasamtök Þorsteins Más Baldvinnssonar og Samherja hf, upp í eitt skipti fyrir öll.

Ég skora á sjómannaforystuna að semja aldrei aftur við LÍÚ og hafna öllum samskiptum við samtökin.

Skipa þarf gerðadóm til að taka á öllum málefnum sjómanna og sjávarútvegs á Íslandi án allra afskipta LÍÚ.


mbl.is Aflaverðmætið 162 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

900 þúsund tonnum af þorski kastað í sjóinn síðastliðin 18 ár

Skoðanakönnun sem Skáís gerði meðal 900 sjómanna fyrir Kristin Pétursson á Bakkafirði um áramótin 1989-1990 gaf til kynna að allt að 53 þúsund tonnum væri kastað fyrir borð á flotanum öllum á hverju ári.

Þetta er eina skoðanakönnunnin sem gerð hefur verið um brottkast á Íslandsmiðum og er "MARKTÆK" fyrir þær sakir að sjómenn fengu að svara undir nafnleynd.

Allar kannanir sem gerðar hafa verið síðan eru "ALLT Í PLATI".

Einar Vestfirðingur Guðfinnsson ætti að skammast sín og segja af sér ráðherradómi og þingmennsku fyrir kjaftæðið sem hann viðhafði í sjónvarpsfréttum fyrir fáeinum dögum er hann atyrti Grétar Mar og sakaði hann um ómerkilegar lygar.


Sjávarútvegsráðherra LÍÚ

Meðfylgjandi hér neðanmáls er frétt af skip.is, frá því í dag. Þar kemur fram að Einar Vestfirðingur Guðfinnsson, meintur sjávarútvegsráðherra allra íslendinga, er enn eina ferðinna að hórast í kringum "Mannréttindanefnd LÍÚ", og núna í hlutverki gestgjafa LÍÚ fyrir Grænlenskan ráðherra.

Og tilefnið ? Jú auðvitað til að reyna að forða Brimi hf, frá löngu tímabæru gjaldþroti vegna sjálfskapavítis og græðgi stjórnenda félagsins.

Fyrir hverja aðra er "Ofur-Vestfirðingurinn" Einar Guðfinnsson að semja um grálúðukvóta á sama tíma og Vestfirðingafjórðungur er að hrynja til grunna vegna svika ráðherrans við sitt eigið fólk  ?

Ég á þess ósk heitast að Grænlenski ráðherran hundsi með öllu væluliðið íslenzka og gefi þeim drag í afturendann !

Tilvitnun í frétt af skip.is 

Hér á landi er staddur sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherra Grænlands, Finn Karlsen í boði Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra. 

Heimsóknin hófst formlega í gær, þriðjudaginn 12 ágúst. Ráðherrann heimsótti skrifstofu LÍÚ  í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Hans Möller.

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ bauð ráðherrann velkominn. Rædd voru ýmis sameiginleg málefni varðandi fiskveiðar Grænlendinga og Íslendinga svo sem veiðar úr deilistofnum, hvalveiðar og umhverfismerkingar. 

Í máli framkvæmdastjóra LÍÚ kom fram nauðsyn þess að efla samvinnu milli landanna um sameiginleg hagsmunamál.

Ráðherrann upplýsti að ákveðið hafi verið skipa nefnd með fulltrúum Íslands og Grænlands til þess að fjalla sérstaklega um grálúðuveiðar. 


Í tólfhundruð ár höfum við búið hér á þessum stað

Það kemur mér ekki á óvart þótt brúðhjónin hafi tekið þessa skyndiákvörðun, enda Tálknafjörður fallegastur allra fjarða.

Sjá ljósmyndir; http://nilli.blog.is/album/

Já, og hér höfum við búið mann fram af manni í 1200 ár, fæðst, lifað og dáið.

Í 1200 ár höfum við búið hér og sótt sjóinn !

En nú er það ekki lengur hægt !

Erlendir auðhringir með LÍÚ í broddi fylkingar hafa rænt af okkur fiskimiðunum og halda Alþingi Íslendinga í herkví með hótunum !


mbl.is Skyndigifting í lopapeysu og í gúmmískóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband