Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Norskur sjávarútvegur í miklum blóma

IMG_6900

Sjávarútvegur í Noregi skapar því sem næst jafnmikil verðmæti á öðrum sviðum samfélagsins og í eigin greinum. Þannig leiðir hver króna, sem verður til í hjá sjávarútvegsfyrirtækjum, til 95 aura verðmætasköpunar annars staðar. Þessi margfeldisáhrif eru gríðarlega mikilvæg fyrir norskt samfélag ekki síst í hinum dreifðu byggðum landsins.

Þessir úrreikningar miðast við árið 2008 og voru gerðir af SINTEF, stærsta sjálfstæða ráðgjafafyrirtæki á Norðurlöndum, fyrir samtök sjávarútvegsins í Noregi. Mikilvægi sjávarútvegs að þessu leyti hefur aukist því fyrir tveimur árum skapaði hver króna í greininni um 60 aura annars staðar.

Sjávarútvegur eins og aðrir frumatvinnuvegir búa til mörg afleidd störf í hvers konar þjónustu. Norskur sjávarútvegur hafði mikið umleikis á árinu 2008, meðal annars var lagt í miklar fjárfestingar sem nema um 4,6 milljörðum NOK (92 milljarðar ISK), þar af fóru 1,8 milljarðar til fiskveiða, 1,6 milljarðar í fiskeldi og 1,2 milljarðar í fiskvinnslu.

Framlag norsks sjávarútvegs til landsframleiðslu 2008 er metið á 36 milljarða NOK (720 milljarða ISK). Frumgreinin sjálf, þ.e. veiðar, vinnsla og fiskeldi, skilaði 18,5 milljörðum en margeldisáhrifin gáfu 17,5 milljarða til viðbótar. Hvert ársverk í sjávarútvegi skilaði um 700 þúsund NOK verðmætum til samfélagsins (14 milljónum ISK).

Á heildina litið voru unnin 44 þúsund ársverk árið 2008 í tengslum við norskan sjávarútveg. Við frumgreinina, veiðar, vinnsla og fiskeldi, unnu um 24 þúsund manns en 20 þúsund manns störfuðu í afleiddum greinum. Hvert ársverk í sjávarútvegi skapaði því nánar tiltekið 0,84 ársverk annars staðar.  


Vilhjálmur frá Skáholti

vilhjalmur frá skáholti

Vilhjálmur frá Skáholti var til umfjöllunar í Litlu flugunni hjá RÚV á Rás, 1 í umsjón Lanu Kolbrúnar Eddudóttur þann 6. mai og 13. mai sl.

Ég varð heillaður af þessum meinta launsyni Einars Benediktssonar eftir að hafa hlustað á þættina hennar Lenu.

Flestir kannast við borgarskáldin Tómas Guðmundsson og Stein Steinar, líklega færri við Vilhjálm frá Skáholti sem sönnu nær telst Reykjavíkurbarn: fæddist í borginni, ólst þar upp, orti um hana og dó í henni.

Maðurinn var ekki allra. Því má vel vera að smámunasöm samtíð hafi ályktað um listhæfileika skáldsins út frá undarlegri framkomu.

Ekki svo að skilja að skáldskapur Vilhjálms geti talist byltingarkenndur um form eða efni; hann er tæpast einu sinni frumlegur.

En skáldskapur Vilhjálms er með því betra sem ég hef lesið og hlustað á í seinni tíð.


Böðulseiður

böðull

Til þess legg ég hönd á helga bók og svo skýt ég máli mínu til guðs, að ég ljúflega óneyddur játa og lofa, sakir minna afbrota við guð og menn til, að þjóna mínum náðuga herra og kóngi og hans umboðsmanni í þann máta að strýkja og marka og ekki að þyrma þeim sakamönnum, sem sig í hans sýslu til refsingar forbrotið hafa, með allri trú, dyggð og hollustu, nær hann til kallar, og ég skal ekki um hlaupast.

Og að svo stöfuðum eiði sé mér guð hollur sem ég segi satt, gramur, ef ég lýg.

Anno 1666.


mbl.is Sigurður Einarsson verður yfirheyrður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sörli fann Eldeyjar hinar nýju

neðansjávar eldgos

Við Ísland hafa neðansjávargos verið alltíð, ekki síst á Reykjaneshryggnum. Mun sjaldgæfara er þó að eyjar myndist í slíkum gosum. Í latínuriti frá 1230 er þess getið að „á vorum dögum“ hafi sjórinn ólgað og soðið og myndað stórt fjall upp úr sjónum.

Talið er að þessi lýsing eigi við gos það sem íslenskir annálar telja hafa orðið undan Reykjanesi árið 1211. Í einum annál segir um það gos:

„Sörli fann Eldeyjar hinar nýju, en hinar hurfu er alla ævi höfðu staðið.“ Þá segir frá eldsumbrotum undan Reykjanesi 1422: „Skaut þar landi upp, sem sjá má síðan þeir, er þar fara um síðan.“

islandskort gubrands biskups þorlakssonar

Þá eru sagnir um neðansjávargos við Reykjanesskaga árið 1583 sem myndað hafi Gígeyjar og sjá má á Íslandskorti Guðbrands biskups Þorlákssonar. Þar er Eldey sýnd og Geirfuglasker SV af henni, en Gígeyjar SSA af Eldey.

 


mbl.is Skjálftahrina við Eldey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband