Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Meinvarp í íslenzku efnahagslífi

einar_oddur_1-2.jpg
 
„Þessi stofnun er orðin hreint meinvarp í íslensku efnahagslífi og fátt brýnna en að leysa það hreinlega upp“, sagði Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Vestfirðinga og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, við fjárlagaumræðu á Alþingi þann 27. nóvember 2002 og átti þar við Hafrannsóknastofnun.
 
„Við getum ekki í byrjun 21. aldar lifað við ríkiseinokun í vísindum gagnvart þeirri náttúru sem fæðir okkur og klæðir, sem er hafið kringum landið.“
 
Einar Oddur sagði lífsnauðsyn að efla frjálsa vísindastarfsemi í landinu og ótækt væri að vera bundinn við Hafrannsóknastofnun, „sem með kreddum sínum í þrjátíu ár gagnvart þorskveiðunum er á góðri leið með að draga öll sjávarþorp Íslands niður“.

 

Einar Oddur sagði brýnt að breyta rekstrarformi ríkisstofnana, ekki síst opinberra vísindastofnana.

Hann sagði að ríkið hefði ekkert með það að gera að reka vísindastofnanir.

Hins vegar ætti að auka framlög ríkisins til vísindastarfsemi.

 Í framhaldi af þessu réðst Einar Oddur harkalega að Hafrannsóknastofnun, sem hann nefndi helsta óvin sjávarbyggðanna, en hún fær hátt á annan milljarð króna á fjárlögum til starfsemi sinnar.

Orðið „meinvarp“, sem Einar Oddur notaði um stöðu Hafrannsóknastofnunar í íslensku efnahagslífi, er venjulega notað um krabbameinsæxli.

Af bb.is


mbl.is Leggur til meiri þorskkvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Vestfirðingar hættir að geta rifið kjaft ?

hátíð í bæ

Þegar mætast stálin stinn í ágreiningsmálum verða menn að semja svo báðir megi sæmilega við una. Þar dugar ekki að annar valti yfir hinn.

Útvegsbændur telja sig aðkreppta núna og segja að stefni í óefni hjá þeim. Vel má svo vera hjá þeim sumum. Nú verður löggjafinn að vanda sig og reyna að láta sem flesta njóta sannmælis.

En það er eitt í allri þessari yfirþyrmandi umræðu sem menn virðast alveg gleyma að nefna.

Það er hið merkilega ákvæði í lögum, að kvótagreifarnir geta selt frumburðarrétt þeirra sem næstir þeim eru, jafnvel hundruða manna, án þess nokkur geti rönd við reist.

Þetta þekkja Vestfirðingar manna best og má undarlegt telja að þeir skuli ekki löngu vera búnir að rísa upp og segja hingað og ekki lengra.

Sagt hefur verið, að þegar Vestfirðingar hætta að geta rifið kjaft séu þeir steindauðir úr öllum æðum. Er kannski svo komið?

Menn hafa selt óveiddan fisk í sjónum hér vestra beint við nefið á saklausu fólki fyrir jafnvel milljarða, tilkynnt það samdægurs og pillað sig svo í burtu með blóðpeningana í sekkjum, ef svo mætti segja.

Má ekki nefna þetta svona í framhjáhlaupi þegar þjóðfélagið rambar á barmi upphlaupa?

Þurfum við ekki lífsnauðsynlega að breyta þessu ómannlega kerfi, sem virðist uppfundið af andskotanum sjálfum ?

Grein eftir Hallgrím Sveinsson.


Ég skil ekki þessa frétt

baejarbragur.jpg

Hvað er verið að tala um, "brugðist við tilmælum nefndarinnar með ásættanlegum hætti að hluta til" ?


mbl.is Mannréttindanefnd SÞ lokar máli gegn stjórnvöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið byggir á andvana fæddri hugmyndafræði

Ankeret

Kvótakerfið átti að skila okkur 500-550 þúsund tonna jafnstöðuafla þorsks - en er að skila 160 þúsund tonnum. 

Við Kanada austanvert  átti sama uppskrift að skila einni milljón tonna jafnstöðuafla eftir 1990...

en þar hrundi stofninn  árið 1992 eftir 14 ára tilraunastarfsemi með 20% "aflareglu".....

Allt eru þetta staðreyndir um árangur af  þessari tilraunastarfsemi með þeirri andvana fæddu hugmyndafræði sem fiskveiðistjórn hérlendis byggir nú á - stefnu um að svelta smáþorsk til hlýðni við tölfræðilega tilgátu.

Í Barentshafi  hrintu Rússar okinu af sér árið 2000 og þá loksins fór hafið að svara í samræmi við líffræðileg grundvallaratriði - það virðist verða að veiða töluvert mikið til að viðkomandi stofn auki afrakstur...

Reynslan gefur þetta til kynna - þetta er ekki kenning.

Tilgátan sem þvinguð er upp á okkur í dag - það er kenning....  að öllum líkindum - andvana fædd kenning  ef marka má reynslu...

Gagnstæð stefna - friðun við Kanada austanvert virðist hafa leitt af sér að þorskstofninn  þar hrundi við þessa tilraunastarfsemi  - vöxtur hrundi og stofninn féll.

Þyngsti fiskurinn á miðunum við Kanada árið 1993 - var 0,84 kg - 7 ára gamall undirmálsfiskur - elsti og þyngsti þorskurinn á því svæði.

Þorskstofnar við Kanada Austanvert eru staðbundnir sér stofnar a.m.k. 9 sjálfstæðir stofnar - það var sannað með skýrslu Harold Thompson fiskifræðings  árið 1943 en hann hafði merkt þorsk á svæðinu í 10 ár 1930-1940 og gaf skýrslu sína  um staðbundna þorskstofna þarna árið 1943.

Á Íslandi virðast einnig margir og  staðbundnir undirstofnar í þorskstofninum - svo áleitin spurning er hvernig á  beita "20% aflareglu" á marga undirstofna - af handahófi - út í loftið.

Faglegar forsendur fyrir ríkjandi fiskveiðistjórn virðast flestar fengnar með ágiskunum og tilgátum út í loftið. 

Hvernig getur svona lagað endað - nema illa -  þegar grunn forsendan sjálf virðist andvana fædd hugmyndafræði sem sveltir smáfisk og þorskstofninn virðist vera að úrkynjast smá saman - ef grannt er skoðað? 

Grein eftir Kristinn Pétursson.


mbl.is „Ég ældi bara á móti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótar sakleysingjum

arab-slave-master.jpg

Ljótt er að sjá Gunnþór Ingason á mf, mynd með þessari frétt mbl.is, hafandi í hótum við börn, konur og gamalmenni um borð í nýja Berki NK.

Ætli einhverjum hugnist þetta ?


mbl.is Skip Síldarvinnslunnar ekki á sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband