Togarinn Pamela H-283 frá Hull
18. janúar 1915 strandaði breski togarinn Pamela frá Hull skammt frá landi við krossadal í Tálknafirði. Veður var þá vont og brim við ströndina. Mönnunum heppnaðist að komast í land kvöldið eftir að togarinn strandaði, en þá um nóttina herti enn veður og brim á strandstað og brotnaði þá togarinn svo mikið að sýnt þótti að honum yrði ekki bjargað. Skipbrotsmennirnir af Pamelu voru fluttir til Tálknafjarðar; þar komust þeir um borð í breska togarann Lord Lister er flutti þá utan.
Ljósmyndari: Ekki vitað | Staður: Krossadalur | Tekin: 17.1.1915 | Bætt í albúm: 11.5.2013
Athugasemdir
Engar athugasemdir hafa enn verið skráðar um þessa færslu.