Leita í fréttum mbl.is

Tálknfirđingar kváđu niđur afturgöngu 1696

stora_laugardals_kirkja_2

Áriđ 1696 lézt Bjarni Jónsson bóndi á Bakka í Tálknafirđi og var hann jarđađur í kirkjugarđinum í Stóra-Laugardal.

Fljótlega eftir ađ Bjarni var jarđsettur fór ađ bera á miklum reimleikum á ýmsum bćjum í Tálknafirđi. Töldu vitrir menn í Tálknafirđi fyrir víst ađ Bjarni Jónsson hefđi gengiđ aftur og gert fólki ţessar ónáđir.

Brugđust Tálknfirđingar hart viđ og grófu Bjarna upp og veittu honum enn betri yfirsöng. En ţađ kom ekki ađ haldi og magnađist afturganga Bjarna til allra muna.

Fóru ţá Tálknfirđingar margir saman aftur ađ gröfinni í annađ sinn og grófu Bjarna upp. Varđ ţeim ćriđ hverft viđ í ţađ skipti, ţví hinn dauđi mađur var kominn á fjórar fćtur í gröfinni.

Ţá gripu Tálknfirđingar til gamals ráđs og hjuggu höfuđiđ af karli og stungu ţví viđ ţjóin. Viđ ţessa ađgerđ brá svo viđ ađ Bjarni Jónsson hefur aldrei gert vart viđ sig síđan.


mbl.is Meirihluti trúir á framhaldslíf
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríđur Guđmundsdóttir

Níels. Takk fyrir góđa sögu. Ţetta er saga sem gćti komiđ ađ gagni núna, sérstaklega fyrir ţá sem ćtla áfram ađ brjóta á fiskveiđiréttindum almennings í ţessum gjörspillta heimi!

 Ţađ verđur ekki auđvelt ađ viđhafa niđurkvađningar ţeirra drauga sem velja sér ţann vćnstan kost drukkna viđ fiskveiđar/lífsbjararstarf eđa láta brenna hysmiđ utan af sálar-kjarnanum ađ lífsgöngu lokinni, ađ óklárađri réttlćtisbaráttu fyrir réttindum almennings til fiskveiđa/lífsbjargar?

 Máttur viljans til ađ berjast fyrir réttlćti er ódauđlegur, og skyldi enginn vanmeta styrk og mátt viljans og hugsjónanna í ţessu veraldlega spillta jarđlífi!

 Réttlćtiđ og sannleikurinn sigrar alltaf ađ lokum! Ef ekki eftir jarđlífs-lögfrćđileiđum ţá í einhverri annari vídd sem er ţessari ćđri og megnugri!

 M.b.kv. 

Anna Sigríđur Guđmundsdóttir, 26.4.2011 kl. 16:02

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband