Leita í fréttum mbl.is

Af hverju þessi fjörður ?

sildvei_ar_1-5.jpg

Mynd: Gúsi.

Það þarf að ræða það af hverju safnaðist öll þessi síld fyrir í Kolgrafafirði ?

Er þetta hugsanlega ástæðan ?

Gæti verið að ástæðan fyrir sýkingu, undarlegri hegðun og dauða í síldarstofninum sé sá gengdarlausi sóðaskapur sem viðgengist hefur á síldarmiðunum sl, nokkur ár ?

Risavaxin flottrollsskip með fullvinnslu um borð hafa verið að ryðja sér til rúms með aukinni græðgisvæðingu í sjávarútvegi.

Undanfarin ár hefur síldinni verið skóflað upp í stórum stíl upp í fjöru við Grundarfjörð og víða.

Mörg skip hafa fengið mun meira magn en þau hafa ráðið við að taka um borð og oft á tíðum hefur mörg hundruð tonnum verið slept dauðum niður á veiðislóðina.

Fullvinnsluskipin eru gjörn á að liggja yfir og nálægt veiðislóð síldarinnar sólarhringum saman og smásíld, slóg, hausar og ýmis afskurður fer þá í hafið í þúsunda tonna tali.

Ekki er ósennilegt að þetta sé ástæðan fyrir ástandinu á síldarstofninum í kringum landið !

Eins vakna upp spurningar um hvers vegna síldin hefur þjappað sér á mjög svo óvenjuleg svæði inn í Grundarfirði og innan skerja við Stykkishólm.

Hvaða áhrif hafa hinir nýju öflugu fjölgeislamælar á síldartorfunar í bland við mörgþúsund hestafla vélbúnað síldarskipanna ?


mbl.is 25-30 þús. tonn af dauðri síld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Þetta er of góð og of náttúruleg skýring Niels, til þess að stjórnvöld taki hana til sín næstu 20 til 30 ár!

Ég hef sérhæft mig í genatækni í DK og útskrifuð frá MH á Náttúrusviði og það þarf ekki sérfræðing til að sjá samhengið.

Hvert barn yfir 7 ára aldri sér það. Takk fyrir hugrekkið kæri og gangi þér vel.

Jesús sagði að sannleikurinn gerði menn frjálsa og þá ert þú frjáls, en svo sannarlega ekki efritmenn Haldórs Ásgrímssonar ,né hann sjálfur (bölvaður)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.12.2012 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband