Leita í fréttum mbl.is

Hrákalúkumál

saura gísli 1-3

Maður hét Gísli Jónsson og var oftast nefndur “Saura-Gísli”  en hann var bóndi á bænum Saurum í Dölum. Gísli var fæddur í Dalasýslu árið 1820 en dó í Pembina í Norður Dakota 12. Desember árið 1894.

Það var vani Gísla að fara í allar fjárréttir í Dölum á haustin og var hann oftast vel við skál í ferðum þessum og lenti oft í ryskingum við bændur og búalið.

Eitt sinn var það í Seljalandsrétt í Hörðudal að Gísli hafði uppi slíkar óspektir að Jón Jónsson hreppstjóri í Hlíð setti ofan í við hann.

Brást Gísli reiður við og skyrpti lúku sína fulla af tóbakshrákum og skellti öllu saman framan í Jón hreppstjóra, svo öll hans vit fylltust.

Varð af þessu svonefnt “hrákalúkumál.”

Í réttunum var að þessu sinni staddur Guðmundur bóndi í Stangarholti, er var karlmenni mikið. Ægði honum svo hegðun Gísla að hann dró hann flatan í svaðinu í réttinni og batt hann á höndum og fótum og skellti honum upp á réttarvegginn.

Gerðu menn mikið gys að Gísla en hann fékk ekki varist með öðru en að reyna að hitta menn með hrákum sínum, því hann barðist um á hæl og hnakka og skyrpti á alla vegu.

Þegar réttinni var lokið var Gísli leystur og reið hann sneyptur heim að Saurum. Sýslumaður dæmdi Gísla til tíu vandarhögga hýðingar og skaut Gísli málinu til Landsyfirréttar.

Þar var hann sýknaður, því héraðsdómarinn hafði ekki vikið sæti samkvæmt kröfu Gísla, en þeir áttu þá í harðri deilu og málum út af meiðyrðum og illyrðum beggja.


mbl.is Einsdæmi að hrækt sé á dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband