Leita í fréttum mbl.is

Sæskjaldbaka

Flestar tegundir skjaldbaka eru landdýr sem lifa í fenjum og mýrlendi en nokkrar tegundir hafa að mestu leyti aðlagast lífi í sjó. Þessar sæskjaldbökur koma koma samt á land til þess að verpa eggjum sínum.


Á meðan sumir hópar skriðdýra blómstruðu fyrir milljónum ára en hurfu síðan og aðrir hafa átt sitt blómaskeið á nýlífsöld þá viðast skjaldbökur hafa haldið sínu striki í meira en 200 miljónir ára og breyst afar lítið í grunnlíkamsbyggingu.


mbl.is Afar óvenjulegt að sjá skjaldbökur við Íslandsstrendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Í annálum er sumstaðar sagt frá ókennilegum kykvendum sem komu röltandi frá sjó og fóru sér í engu óðslega, en skutu fólki eigi að síður skelk í bringu. Í einstaka tilfellum töldu menn sig heyra einhverskonar skrölt frá þessum gestum og voru þau í framhaldi af því oft kölluð sleljaskrímsli, því hljóðin minntu á þegar skeljum er slegið saman. En kanske hefur þetta nafn komið til vegna þess að dýrin líktust skel í útliti. Mér varð hugsað til skeljaskrímsla gamalla annála og þjóðsagna meðan ég var að lesa fréttina um skjaldbökur við Íslandsstrendur. Það skyldi þó aldrei vera að það hafi verið skjaldbökur sem okkar sælu forfeður kölluðu skeljaskrímsli og voru meir en skíthræddir við? 

Jóhannes Ragnarsson, 28.8.2007 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband