Leita í fréttum mbl.is

Fáráðlingur kveður sér hljóðs

Hannes Hólmsteinn Gissurason prófessor tjáir sig á blogginu í dag 29.01.2008 um álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðana í grein sem hann nefnir "Kerfið er sanngjarnt"

Eins og gefur að skilja heimilar hann engar athugasemdir við greinina enda er maðurinn ekki þektur fyrir að virða skoðanir annara og lítur á sjálfan sig sem guð almáttugan og yfir alla hafinn.

Tilvitnun í upphaf greinarinnar:

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf er enginn dómstóll, heldur getur óánægt fólk í aðildarríkjum samtakanna sent henni erindi til umsagnar. Úrskurðir nefndarinnar eru ekki bindandi og hafa ekki lagagildi. Nýleg umsögn meiri hluta nefndarinnar um íslenska kvótakerfið sýnir, að hann hefur því miður ekki kynnt sér málið nógu vel.

Tilvitnun lýkur:

Ég spyr ! Er nema von að illa sé komið fyrir Sjálfstæðisflokknum, kvótakerfinu og fiskistofnunum með slíkan öfug-ugga og hræsnara innanborðs ?


mbl.is Uppsagnir í bolfiskvinnslu ná til 300 starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já Henry og þeirra hugmyndafræði er einnig líkt og í þriðja ríki Adolfs og félaga.

"Ef þú ert á móti mér þá ertu óvinur minn og verður fótum troðinn"

Níels A. Ársælsson., 29.1.2008 kl. 16:50

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mér fannst gott að fá þessa athugasemd frá H.H.

 Nú veit ég það sem ég ekki áður vissi, að Mannréttindanefnd S.þ. er bara svona apparat sem óánægt fólk aðildarríkjanna hefur samband við. Svona eitthvað líkt og Útvarp Saga sem þau hringja daglega í Sigurður Hólm og Sigrún Ármanns Reynisdóttir og auðvitað fleiri.

Það er gott að vita þetta því það er auðvitað miklu ódýrara að hringja í Útvarp Sögu og leita ráða hjá Arnþrúði eða Sigurði G. Tómassyni.

Nú verður H.H. að bregða við og segja þeim hjá nefndinni að það fólk sem býr á landsbyggðinni og lífsbjörginni var stolið frá, sé nú bara svoleiðis fólk að það eigi ekki að hafa mannréttindi.

Og þetta með Þriðja ríkið Nilli.

Hvað var það nú aftur sem hann Jósep Göbbels sagði um lygina? 

Árni Gunnarsson, 29.1.2008 kl. 17:26

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Einmitt Árni. Bara ljúga nógu oft og lengi  sama hlutnum þá trúir lýðurinn.

Eða er það ekki ?

Níels A. Ársælsson., 29.1.2008 kl. 21:42

4 Smámynd: halkatla

HHG er ekki alveg kominn það langt inní upplýsingaöldina til að átta sig á því að hugmyndir má gagnrýna og jafnvel breyta ýmsu, hver hlustar á þannig mann?? það fólk þarf að komast í sálgreiningu hið snarasta!

halkatla, 29.1.2008 kl. 21:44

5 Smámynd: halkatla

ég er þannig, að ef HHG segir eitthvað þá fer ég í öfuga átt

halkatla, 29.1.2008 kl. 21:45

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

 Góð færsla hjá þér Níels, og fyrirsögnin skemmir ekki fyrir

Ingibjörg Hinriksdóttir, 29.1.2008 kl. 22:35

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Rétt Anna. Ég er sammála þér.

Níels A. Ársælsson., 29.1.2008 kl. 22:35

8 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Takk Inga. Ég vandaði mig líka óvenju mikið með fyrirsögnina í þetta skiptið.

Níels A. Ársælsson., 29.1.2008 kl. 22:40

9 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Góða fyrirsögn Nilli, svo hjartanlega sammála þér.

Grétar Rögnvarsson, 31.1.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband