Leita í fréttum mbl.is

Hættulegasta veiðafæri í heimi

Af hverju er flottroll álitið hættulegasta veiðafæri í heiminum ?

Vegna þess að;

Flottroll drepur með smugi fiska í gegnum möskva allt að 10 til 15 sinnum meira magn af fiski heldur en það veiðir og skilar að landi.

Flottroll splundrar fiskitorfum og ruglar náttúrulegt göngumynstur fiskistofna til hryggninga og uppeldisstöðva.

Flottroll drepur sem meðafla gríðarlegt magn af bolfiski og seiðum ýmisa fiskitegunda sem síðan er brætt í fiskimjöl og lýsi til skepnufóðurs.

Mörg dæmi eru um að tugir tonna (allt að 60 tonn í einu holi) af LAXI hafi komið í flottroll í lögsögu Íslands og verið kastað DAUÐUM í hafið.

 

 

 


mbl.is Loðna finnst við Hjörleifshöfða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Áhugavert en um leið ógnvænlegt - hvað skyldi stór (lítill) hluti þjóðarinnar gera sér grein fyrir alvarleika málsins? Öld Fisksins er á enda í bókstaflegum skilningi.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 25.2.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

Mikið myndi ég vilja að þeir væru svona duglegir að leita af Þorski og myndu auka aflaheimildir í honum með sama hætti og þeir gera með loðnu.

Fannar frá Rifi, 25.2.2008 kl. 12:48

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Algert skaðræði og búið að valda gríðarlegu tjóni á fiskistofnum við landið. Ekki síst var þetta skaðræði í þorskinum á Vestfjarðamiðum, drap áhemju af fiski að sumrinu til sem ekki náðist að vinna sómasamlega einusinni.

Í síld og loðnu átti aldrei að leyfa þetta, það held ég að sé víðtæk skoðun.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.2.2008 kl. 13:22

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Flott myndband...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.2.2008 kl. 13:33

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Fengu ekki bara medalíur og hrós fyrir Bjarni, engir fengu stærri þorskkvóta til að versla með en þessir skítmokarar og þeirra útgerðir.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.2.2008 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband