Leita í fréttum mbl.is

Ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár

guðmundur kjærnested skipherra í brúnni á tý er hann lagði upp í síðustu sjóferðina sem skipherra

Ég hélt satt að segja að með því að berjast fyrir því að fá yfirráð yfir okkar fiskveiðilögsögu væri vandinn leystur. En það er nú eitthvað annað, mér sýnist vandinn hafa aukist", segir Guðmundur Kjærnested, fyrrum skipherra hjá Landhelgisgæslunni.

 

„Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár ef ég hefði getað ímyndað mér að staðan yrði svona nokkrum árum síðar", segir Guðmundur og vísar til þess að hann sé síður en svo sáttur við núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi.  

Hann telur að kerfið hafi orðið til þess að aflaheimildirnar hafi færst á hendur nokkurra útgerða og litlu sjávarplássin standi eftir meira og minna kvótalaus.

„Mér sýnist að það hljóti að vera eitthvað mikið að. Aflaheimildirnar hafa verið að minnka undanfarin ár.

Með fullri virðingu fyrir fiskifræðingunum okkar, sem ég átti ágætt samstarf við í mörg ár, þá eru þeir ennþá að notast við bók Bjarna Sæmundssonar, sem var eini fiskifræðingur landsins þegar hann skrifaði bókina, og hafa sáralitlu við hana bætt", segir Guðmundur.

„Ein af meginástæðunum fyrir því að við Íslendingar færðum landhelgina út í 200 mílur var að menn vildu forðast svokallaða ryksugutogara á miðunum, sem fóru á milli hafsvæða og þurrkuðu upp heilu fiskigöngurnar", segir Guðmundur. „Við vildum sem sagt losna við þessa togara, en ég spyr: Hvað erum við að gera í dag?

Eru ekki allir að kaupa frystitogara eða verksmiðjutogara og hætta að koma með aflann til vinnslu í landi? Á þessum skipum er umtalsverðu magni af afskurði og slógi hent fyrir borð. Það ég best veit eru verksmiðjutogarar ekki leyfðir innan 200 mílna við Bandaríkin og það sama hygg ég að sé uppi á teningnum hjá Færeyingum.

Heimild; tímaritið Ægir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sæll Nilli þið Guðmundur voruð vinir er það ekki???

Einar Vignir Einarsson, 30.3.2008 kl. 17:20

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Jú reyndar. Mjög miklir vinir !

Hvernig vissuru það ?

Níels A. Ársælsson., 30.3.2008 kl. 17:25

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það er ekkert flókið að sjá það, það vilja allir vera vinir Nilla. Flott grein Nilli.

Hallgrímur Guðmundsson, 30.3.2008 kl. 17:27

4 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Við vorum saman í skóla, svo maður fylgist alltaf með skólafélögum.

Einar Vignir Einarsson, 30.3.2008 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband