Leita í fréttum mbl.is

Glæpasamtök LÍÚ kveða sér hljóðs

Ólöglegt samráð LÍÚ og brot ríkisvaldsins gegn EES samningnum.  

Landsamband Íslenskra útvegsmanna stendur fyrir samráði með verð á aflamarki í öllum tegundum á óveiddum fiski og eru aðildarfélagar samtakana með nálega 80% markaðshlutdeild á leigumarkaðnum á sinni könnu.  

Landsamband Íslenskra útvegsmanna rekur kvótamiðlun í húsakynnum sínum og stjórna þaðan verði á leigukvótum í krafti yfirburða á markaðnum enda handhafar nær allra veiðiheimilda í aflamarkskerfinu.  Verð á aflahlutdeild og aflamarki lúta engum lögmálum markaðarins heldur einungis handstýrðu afli Líú.   

Hvorki Ríkisstjórnin né samkeppnisyfirvöld aðhafast neitt í málinu og láta þessi lögbrot yfir þjóðina ganga.  Kvóti sem úthlutað er ár hvert af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar  til útvaldra fyrirtækja og einstaklinga er ríkisstyrkur og hann ber að afnema samkvæmt bókun 9. í EES samningnum.  

EES–samningurinn. 2. KAFLI:

RÍKISAÐSTOÐ:

61. gr.

1. Ef ekki er kveðið á um annað í samningi þessum er hvers kyns aðstoð, sem aðildarríki EB eða EFTA-ríki veitir eða veitt er af ríkisfjármunum og raskar eða er til þess fallin að raska samkeppni með því að ívilna ákveðnum fyrirtækjum eða framleiðslu ákveðinna vara, ósamrýmanleg framkvæmd samnings þessa að því leyti sem hún hefur áhrif á viðskipti milli samningsaðila.

 

BÓKUN 9 {1}
UM VIÐSKIPTI MEÐ FISK OG AÐRAR SJÁVARAFURÐIR.

{1} Sjá samþykktir.

4. gr.
 

1. Aðstoð sem veitt er af ríkisfjármunum til sjávarútvegs og raskar samkeppni, skal afnumin.

2. Löggjöf varðandi markaðsskipulag sjávarútvegs skal breytt þannig að hún raski ekki samkeppni.

3. Samningsaðilar skulu leitast við að tryggja samkeppnisskilyrði sem gerir hinum samningsaðilunum kleift að beita ekki ráðstöfunum gegn undirboðum og jöfnunartollum.


mbl.is LÍÚ hótar úrsögn úr SA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Athyglisverð færsla og þetta er sjálfsagt svipað þöggunarmál og samráð olíufélaganna voru á sínum tíma. Þarna fer bara samráðið fram á einum stað en ekki á þrem eins og í hinu tilfellinu. Þegar við göngum í ESB verða málefni sjávarútvegsins og kvótaeigenda tekin til rækilegrar skoðunar. Það er ekki að ástæðulausu sem LÍÚ og Davíðsklíkan berst með kjafti og klóm gegn inngöngu í ESB. Þá er talað um auðlind þjóðarinnar og annað háfleygt rugl fylgir með. Það er bara verið að tefja málið svo peningaplokkarar innan útgerðarmanna geti braskað lengur í friði.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.11.2008 kl. 17:30

2 Smámynd: Haraldur Pálsson

Hmm? Þessi lög segja samt ekkert um það að aflamarkskerfið sé ólöglegt samkvæmt EES samningnum. Reyndar er það svo að ESB hugar að taka upp sama aflamarkskerfi og er hérna á Íslandi. Því flestir stofnar innan ESB ríkja hafa þurft að líða fyrir ofveiði með núverandi kerfi.

Haraldur Pálsson, 24.11.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband