Leita í fréttum mbl.is

Mjaldur (White Whale-Delphinapterus leucas)

Fullvaxnir tarfar eru 4,2 – 5,5 m langir og vega 1-1,6 tonn en kýrnar 3 – 4,1 m og vega 400 – 600 kg.  Lífslíkur eru 30 – 40 ár. 

Fullvaxin dýr eru ljósgul eða alhvít en kálfar gráir eða brúnir en lýsast með aldrinum. 

Höfuðið er lítið og kúpt og dýrið getur hreyft það í allar áttir og breytt framstæðum munnsvipnum. 

mjaldur 2

Bægslin eru fremur stutt, spaðalaga, lítið eitt uppsveigð og velhreyfanleg.  Sporður er oft dökk á jöðrum og bakuggi enginn en dökk rák í staðinn.  Hann kafar oft í 1-2 mínútur í einu.

Mjaldurinn er flækingur umhverfis Ísland og er oftast í 5-20 dýra hópum en líka miklu stærri, rúmlega 1000 saman. 

mjaldur 3

Hann syndir oft upp stórfljót í kaldari löndum og eltir laxfiska stundum mörg hundruð km frá strönd, en þar heldur hann sig að mestu og verður lítið vart við hann á djúpsævi.  Hann er gæfur og auðvelt að komast að honum. 

Aðalfæðan er ýmsar fiskategundir, smokkfiskur og áta.  Hann kafar líklega ekki miklu dýpra en 300 m, þar sem hann er að mestu á grunnsævi.

mjaldur

Kýrnar verða kynþroska um 5 ára aldur en tarfar átta ára.  Mökunin á sér stað, þegar ísa leysir, og meðgangan er u.þ.b. 14 mánuðir  Kálfurinn er u.þ.b. 1,5 m langur og 80 kg við fæðingu. 

Dýrin verða ekki hvít fyrr en á 5-12 ára aldri.  Engin önnur hvalategund getur gefið frá sér eins margbreytileg hátíðnihljóð og mjaldurinn og aðeins hnoðarar og náhvalir geta hreyft höfuðið eins frjálslega og mjaldurinn.

útbreyðsla hvíta hvalsins

Grænlendingar hafa frá alda öðli veitt mikið af þessari norðlægu og sílspikuðu skepnu, 400-1000 dýr á ári.

Skozkir og norskir hvalveiðimenn ofveiddu mjaldur og enn þá er ekki talið að stofnarnir, sem þeir tóku úr, hafi náð sér á strik.  Hvítabirnir og rostungar taka líka úr stofnunum og talið er að mengun hafanna ógni tilveru þeirra verulega.

Heildarstofnstærð er áætluð 50.000 – 70.000 dýr.


mbl.is Sjaldséður mjaldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Hnúfubakurinn er flottur á myndbandinu en er ekki til myndband með mjaldri?

corvus corax, 27.4.2009 kl. 16:47

2 identicon

Góð grein hjá þér og skemmtilegt myndband. Einhvernveginn fannst mér þó að hvalurinn í myndbandinu væri eitthvað annað en mjaldur. Hann leit allavega öðruvísi út en myndirnar að neðan. 

Ég var fyrir stuttu síðan í Sea world í San Antonio og þá var einmitt Mjaldur sem synti með fólk á bakinu í stórri laug þar, en hann var alveg eins og myndirnar hjá þér.

Kanski er þetta vitleysa hjá mér en góð grein hjá þér engu síður.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 17:08

3 Smámynd: Heimir Tómasson

Fróðlegur pistill að venju. Takk fyrir hann.

Heimir Tómasson, 27.4.2009 kl. 17:09

4 identicon

Heirðu detti mér nú allar dauðar lýs á höfði. Ég kveikti aftur á myndbandinu þá kom allt annar hvalur sem sem líkist meira  mjaldri.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 17:10

5 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Takk fyrir ábendinguna.

Það fór vitlaust myndband óvart (nema kanski fyrir þekkingarleysi) inn hjá mér...heheh .

Níels A. Ársælsson., 27.4.2009 kl. 17:12

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flott grein og hafðu bestu þakkir fyrir.

Jóhann Elíasson, 28.4.2009 kl. 07:38

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þakka ykkur öllum fyrir góð orð.

Níels A. Ársælsson., 28.4.2009 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband