Leita í fréttum mbl.is

Sagnir um eiturþörunga í kræklingum

kræklingar

Sagnir herma að fyrir mörgum öldum hafi Indjánar í Norður-Ameríku forðast að borða kræklinga vissa hluta ársins.

Elsta ritaða heimildin um þörungablóma eitraðra þörunga er í Biblíunni í Mósebók 7. versi 20-21 en þar stendur að allt vatn í ánni Níl hafi orðið að blóði og fiskarnir dáið.

Alexandrium_fraterculus

Fyrsta skráða tilvikið í heiminum um dauðsfall vegna skelfiskeitrunar er frá árinu 1793 í Breska Kolumbía í Kanada en þá lést maður úr áhöfn landkönnuðarins Georg Vancouver eftir neyslu skelfisks.

kræklingur 2

Við staðarval fyrir kræklingarækt er að mörgu að hyggja. Veðurfar, hita- og seltustig sjávar, fæðuframboð (svifþörungar), fjöldi kræklingalirfa, mengun og afræningjar eru allt þættir sem vel þarf að athuga áður en af stað er farið.

kræklingarækt

Helstu erfiðleikar við kræklingarækt hér við land eru til að mynda óblítt veðurfar, lagnaðarís og æðarfugl sem étur kræklinginn.

Á árinu 1998 voru framleidd um 500 þúsund tonn af kræklingi í heiminum. Afkastamestir í ræktuninni eru Spánverjar, Ítalir, Hollendingar, Frakkar og Kínverjar.

Þegar allar kræklingategundir eru hins vegar teknar með í reikninginn var framleiðslan um 1,4 milljónir tonna þetta sama ár og stóðu Kínverjar fyrir um þriðjungi þeirrar framleiðslu.

Ólíkt flestum öðrum sjávardýrum er mun minna veitt af villtum kræklingi en aflað er með ræktun.


mbl.is Eitrun í kræklingi úr Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband