Leita í fréttum mbl.is

Stór skata og tindaskata (lóðskata eða tindabykkja )

stórskata

Stór skatan hin eina og sanna getur orðið feiknastór, segir sagan að veiðst hafi skötur sem verið hafa yfir 2 metrar á breidd, og þá um og yfir 3 metrar á lengd.

Eins og flestar aðrar skötur er þessi tegund ljós á kvið, en dökkbrún eða móleit að ofan nokkurnveginn ómynstruð og einlit.Hún ber mun færri gadda en frænka hennar Tindabykkjan, gaddar skötunnar eru nær eingöngu á hala hennar þeir stærstu í beinni röð eftir miðju efra borði halans.

Fullorðnar skötur eru rándýr sem leggjast á ýmsa aðra fiska en ungar skötur þurfa sjálfsagt að láta sér nægja smærri dýr og orma af mismunandi tagi. Skötur hafa lengi verið á borðum íslendinga, og hefur vestfirska þorláksmessuskatan náð að festa sig í sessi um land allt þó sennilega sé stöðugt minna etið af skötu aðra daga ársins.

tindaskata

Tindaskatan (vestfizka heitið er; lóðskata eða tindabykkja) er einna algengust þeirra fjölmörgu skötutegunda sem fundist hafa á íslandsmiðum.Tindaskatan er oft kölluð tindabykkja og ber hún nöfn sín með réttu, því á efri hlið er hún alsett göddum stórum og smáum, þeir stærstu eru á hala, miðju baki og umhverfis augun.

Tindaskatan verður ekki stór miðað við margar skötutegundir en hún getur þó stundum slagað hátt í metra að lengd.Kviðurinn er ljós en á baki er hún móleit og nokkuð breytileg.


mbl.is Skötuilmur á Baldursgötunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaffistofa Halldórs Ásgrímssonar

á kaffistofunni
Einkahlutafélagið Nóna, sem gerir út tvo smábáta frá Höfn í Hornafirði, skuldaði 5,3 milljarða króna í árslok 2008.
Í ársreikningi félagsins má lesa að skammtímaskuldir við lánastofnanir félagsins, sem greiða þarf á þessu ári, námu 4,2 milljörðum króna.
Útgerðin er dótturfyrirtæki útgerðarrisans Skinneyjar-Þinganess sem á 98 prósent í fyrirtækinu.

Tap Nónu ehf. á árinu 2008 nam 2,5 milljörðum og bókað eigið fé í árslok var neikvætt um annað eins.

Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um versnaði skuldastaða íslensks sjávarútvegs gríðarlega eftir fall bankanna, og kom þar til hátt hlutfall skulda í erlendri mynt.

Í þessu virðist vandi Nóna liggja því gengistap fyrirtækisins árið 2008 nam rúmlega 2,8 milljörðum króna. Gengistap fyrirtækisins árið 2007 var 162 milljónir.

Samningaviðræður milli Nóna og lánastofnana um endurfjármögnun stóðu yfir í sumar en endurskoðandi fyrirtækisins telur að takist samningar ekki sé ljóst að "ríki veruleg óvissa um áframhaldandi rekstur".

peningar

Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess, og Aðalsteinn Ingólfsson, skráður framkvæmdastjóri Nóna ehf. í ársreikningi fyrirtækisins, vildu ekki gefa neinar upplýsingar um fjármál fyrirtækisins þegar eftir því var leitað, og því ekki hvort tekist hefði að koma fyrirtækinu fyrir vind, eða hvernig svo há skuld væri tilkomin á jafn lítið útgerðarfyrirtæki.

Þá er ljóst að smábátaútgerðin í landinu keypti aflaheimildir fyrir háar upphæðir á síðustu árum. Aflaheimildir fyrirtækisins á kostnaðarverði eru metnar á rúmlega tvo milljarða en fyrirtækið fjárfesti fyrir 1,5 milljarða í kvóta árið 2007.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skuldar smábátaútgerðin í landinu um fimmtíu milljarða króna og skuldir Nóna námu því um tíu prósentum af heildarskuldum í árslok 2008. Alls lönduðu um 800 smábátar afla á síðastliðnu fiskveiðiári auk strandveiðibáta.

Nóna gerir út línu- og netabátana Ragnar SF-550, sem varð aflahæstur smábáta á síðasta ári með 1.329 tonn, og Guðmund Sig SF-650.- shá


Allan fisk á uppboð innanlands

við fiskmarkað 2

Lögfesta á vigtun og uppboð á öllum fiski innanlands áður en hann er settur í gáma.

Með því móti þyrfti ekki að koma til neitt álag á útflutninginn og allar fiskvinnslur og útflytjendur sætu við sama borð.

Gríðarlegu magni af fiski er stolið undan í útflutningi með gámum auk þess sem tegundasvindl er mjög umfangsmikið.

Um er að ræða svindl upp á þúsundir tonna árlega.


mbl.is 35 sagt upp hjá fiskverkunarfyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rockefeller heilkennin

rockefeller

Skömmu fyrir aldamót 1900 var John D. Rockefeller sennilega hataðasti maður Ameríku. Slóð hans var þakin gjaldþrota keppinautum og í röðum verkamanna var hann hataður fyrir vægast sagt óprúttna framkomu í nokkrum verkföllum.

Til að hressa upp á mannorðið réði hann til sín fremsta auglýsingasérfræðing samtímans, Ivy Lee. Hann ráðlagði gamla ógnvaldinum að gefa árlega lítið brot auðæfa sinna til háskóla, sjúkrahúsa og annarra líknarmála, en gera það á eins áberandi hátt og mögulegt var.

Til að tryggja vinsamleg blaðaskrif ráðlagði hann Rockefeller að ganga með gljáandi smápeninga upp á vasann í hvert sinn er hann kæmi fram opinberlega og gefa smákrökkum sem væru viðstaddir. Með þessum aðferðum tókst John D. að hreinsa mannorð sitt í augum almennings og fékk smám saman orð á sig fyrir að vera göfugt og barngott gamalmenni.

Gjafastarfsemin tók brátt á sig vísindalegri svip og árið 1913, við tilkomu tekjuskattsins, breyttust góðgerðastofnanir í hrein gróðafyrirtæki. Þingmaðurinn Wright Patman gerði töluvert viðamikla rannsókn á viðskiptaháttum góðgerðastofnana snemma á síðasta áratug.

[Wright Patman, TAX-EXEMPT FOUNDATIONS: THEIR IMPACT ON SMALL BUSINESS, 1964] Gott dæmi um hvernig hægt er að spila á þetta kerfi kemur fram í skýrslu um stofnanir David G. Baird, eiganda Baird and Company. Árið 1937 stofnaði hann þrjár "góðgerða"stofnanir og tíu árum seinna voru samanlagðar tekjur þeirra 7.250.000 dollarar.

Öll þessi ár voru þær önnum kafnar við að gefa hverri annarri gjafir og aðeins 160.000 dollarar sluppu út fyrir hringinn í formi raunverulegra gjafa. Á þennan máta sparaði Baird sér milljónir í skatta. Sami leikurinn er leikinn í sambandi við erfðaskatta; ættarauðurinn er látinn ganga á milli kynslóða í gegnum góðgerðastofnanir—skattfrjálst.


mbl.is Samherji styrkir samfélagsverkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Vörum þjóðir N-Atlantshafs við Orra Vigfússyni

laxafjölskylda

Vonandi verður hann tekinn sem fyrst úr umferð þessi ömurlegi Orri Vigfússon sem verið hefur holdgervingur spillingar á Íslandi svo lengi sem menn muna.

Færa má fyrir því sterkar líkur að helsta iðja Orra Vigfússonar í langan tíma hafi verið að þiggja mútur úr hendi ákveðina hagsmunasamtaka í sjávarútvegi og frá útlenskum spjátrungum.

Örri Vigfússon þykist vera að vernda villta laxastofna við N-Atlantshaf með uppkaupum á kvótum frumbyggja og annara íbúa.

En raunin er sú að þessi blekking hefur ekki skilað neinu nema félagslegum hörmungum fyrir fátæka veiðimenn og fjölskyldur þeirra.

Orri Vigfússon hafði nú ekki mikið fyrir því hér um árið að upplýsa NASF um þau 60 tonn af villtum laxi sem eitt af skipum Samherja hf, fékk í einu hali í flottroll SA af Íslandi ?

Öll barátta Orra Vigfússonar hefur fyrst og fremst snúist um að stinga fjármunum í eiginn vasa á kostnað fátæks fólks.


mbl.is Varar Obama við norskum laxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða greiddar bætur til íslenzkra leiguþræla ?

klippur

"Ég hélt satt að segja að með því að berjast fyrir því að fá yfirráð yfir okkar fiskveiðilögsögu væri vandinn leystur".

"En það er nú eitthvað annað, mér sýnist vandinn hafa aukist", sagði Guðmundur Kjærnested, fyrrum skipherra hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við Ægi, tímariti um sjávarútvegsmál í október 2002".

„Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár ef ég hefði getað ímyndað mér að staðan yrði svona nokkrum árum síðar", segir Guðmundur og vísar til þess að hann sé síður en svo sáttur við núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi".

"Hann telur að kerfið hafi orðið til þess að aflaheimildirnar hafi færst á hendur nokkurra útgerða og litlu sjávarplássin standi eftir meira og minna kvótalaus.„Mér sýnist að það hljóti að vera eitthvað mikið að".


mbl.is Fá bætur vegna þorskastríðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átumein í líkama mannfélagsins

„Auðvaldið, sem lifir á ránglæti, heimsku og yfirgángi, þarf ekki að ætla sér þá dul að kenna oss, upplýstum alþýðumönnum, neinn sannleika. Þeir sem halda fyrir yður gæðum lífsins og banna yður að vinna nytjar jarðarinnar, það eru fjandmenn Guðs og...

Er nýtt frumvarp sjávarútvegsráðherra helsta ástæðan ?

Það læðist óneitanlega að manni sá grunur að helsta ástæðan fyrir málþófi stjórnarandstöðunnar sé sú að koma í veg fyrir að nýtt frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða nái fram að ganga. LÍÚ flokkarnir munu með...

Friðun loðnustofnsins lífsnauðsynleg

Loðnuveiðar ætti einungis að leyfa á vetravertíð til manneldis og hroggnatöku. Ekki ætti að vera heimilt að veiða loðnu austan línu sem dregin verði réttvísandi í suður frá Dyrhóley og norðan línu sem dregin verði réttvísandi í vestur frá Garðskaga....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband