Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2012

Kvótakerfið byggir á andvana fæddri hugmyndafræði

Haförn BA-327 3198

Kvótakerfið átti að skila okkur 500-550 þúsund tonna jafnstöðuafla þorsks - en er að skila 190 þúsund tonnum. 

Við Kanada austanvert  átti sama uppskrift að skila einni milljón tonna jafnstöðuafla eftir 1990...

en þar hrundi stofninn  árið 1992 eftir 14 ára tilraunastarfsemi með 20% "aflareglu".....

Allt eru þetta staðreyndir um árangur af  þessari tilraunastarfsemi með þeirri andvana fæddu hugmyndafræði sem fiskveiðistjórn hérlendis byggir nú á - stefnu um að svelta smáþorsk til hlýðni við tölfræðilega tilgátu.

Í Barentshafi  hrintu Rússar okinu af sér árið 2000 og þá loksins fór hafið að svara í samræmi við líffræðileg grundvallaratriði - það virðist verða að veiða töluvert mikið til að viðkomandi stofn auki afrakstur...

Reynslan gefur þetta til kynna - þetta er ekki kenning.

Tilgátan sem þvinguð er upp á okkur í dag - það er kenning....  að öllum líkindum - andvana fædd kenning  ef marka má reynslu...

Gagnstæð stefna - friðun við Kanada austanvert virðist hafa leitt af sér að þorskstofninn  þar hrundi við þessa tilraunastarfsemi  - vöxtur hrundi og stofninn féll.

Þyngsti fiskurinn á miðunum við Kanada árið 1993 - var 0,84 kg - 7 ára gamall undirmálsfiskur - elsti og þyngsti þorskurinn á því svæði.

Þorskstofnar við Kanada Austanvert eru staðbundnir sér stofnar a.m.k. 9 sjálfstæðir stofnar - það var sannað með skýrslu Harold Thompson fiskifræðings  árið 1943 en hann hafði merkt þorsk á svæðinu í 10 ár 1930-1940 og gaf skýrslu sína  um staðbundna þorskstofna þarna árið 1943.

Á Íslandi virðast einnig margir og  staðbundnir undirstofnar í þorskstofninum - svo áleitin spurning er hvernig á  beita "20% aflareglu" á marga undirstofna - af handahófi - út í loftið.

Faglegar forsendur fyrir ríkjandi fiskveiðistjórn virðast flestar fengnar með ágiskunum og tilgátum út í loftið. 

Hvernig getur svona lagað endað - nema illa -  þegar grunn forsendan sjálf virðist andvana fædd hugmyndafræði sem sveltir smáfisk og þorskstofninn virðist vera að úrkynjast smá saman - ef grannt er skoðað? 

Grein eftir Kristinn Pétursson.


mbl.is Kvótamálið í ríkisstjórn á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjaldan launar kálfur ofeldi sitt

sjomenn_liu.jpg

Dapurlegt var að sjá þetta og enn dapurlegra er að verða vitni að heimtufrekju og óbilgirni LÍÚ gagnvart sjómönnum.


mbl.is Segja kröfu LÍÚ koma úr hörðustu átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband