Leita í fréttum mbl.is

Rommkópar - tálbeita hákarlamanna

theódór friðriksson

Á seinni hluta nítjándu aldar kom til sögunnar ný beita sem íslenzkir hákarlamenn sögðu algjöra byltingu við veiðar á hákarli; voru það litlir selkópar vestan frá Breiðafirði, og voru þeir látnir liggja í pækli í heilu lagi í sterku íláti.

En það merkilega við þessa hákarlabeitu var það, að selkóparnir voru ekki ristir á hol, heldur voru þeir aðeins opnaðir með svolítilli stungu, þegar búið var að veiða þá, og var sterku rommi helt gegnum smuguna inn í kópinn; vínandinn samlagaðist innýflunum og blóðinu og fóru út í spikið; var þess og vandlega gætt , að rommið færi ekki út úr skrokknum aftur og vandlega saumað fyrir opið.

hákarlaskip upp á kambi á siglufirði anno 1890

Þegar kóparnir voru teknir upp úr ílátinu voru þeir skornir sundur í smábeitu, og angaði af þeim lyktin er þeir voru opnaðir, enda var ekki tútt um að sumir drykkjumenn langaði til að bragða á romminu, sem inn í þeim var, ef þeir voru alveg vitundarlausir af brennivíni. – Þetta voru nefndir rommkópar og voru þeir einhver hin allra mesta tálbeita fyrir hákarl.

Á þessum hákarladöllum  - eins og hákarlaskipin voru nefnd – var útbúnaður allur með líku móti. Menn beittu hrossakjöti og selspiki. Skinnið var látið tolla við selbeiturnar og stungið hníf í gegnum hverja beitu; var önnur beitan höfð af sel og önnur af hrossakjöti – á víxl. –

útbúnaður

Mörgum beitum var beitt í einu, var þeim þrýst upp eftir leggnum á „sókninni“(hákarlaönglinum), síðast var bugurinn fylltur með ýmsu gumsi úr hákarlinum, svo sem munnamögum, gallhúsum, hjörtum o. s.frv., og tóbaksmenn gerðu sér það oft að reglu að hrækja á beituna um leið og sókninni var kastað fyrir borð. –

Við vaðsteininn var járnkeðja, tveggja faðma löng, sem fest var við sóknina, en millivaðarhaldsins var kaðalspotti á að gizka faðmur á lengd, sem kallaður var „bálkur“.

Heimild: Theódór Friðriksson.


mbl.is Fyrstu hákarlarnir í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband