Leita í fréttum mbl.is

Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti

Kvótamiðlun LÍÚ virðist vera einhvers konar samráðsvettvangur útgerðafélaga innan vébanda LÍÚ, þar sem handhafar kvótans geta með samstilltum aðgerðum haldið uppi háu kvótaverði til útgerða án kvóta.

Þá fjármuni sem handhafar kvótans fá við framsal hans geta þeir síðan nýtt í samkeppni sinni um kaup afla á fiskmörkuðum við fiskverkendur án útgerðar eða útgerðir án kvóta. Handhafar kvótans ráðið því hver fær og getur nýtt rétt sinn til fiskveiða í atvinnuskyni og hver afkoma þeirra og fiskverkenda er.

Hluta kvóta má flytja milli ára, sem gerir það að verkum að aldrei verður umfram framboð. Auk þess sem handhafar kvótans geta með málamyndafærlsum milli útgerða sinna búið til viðskipti. Ekkert eftirlit er af hálfu stjórnvald með kvótaviðskiptum, ef frá er talið að þau ber að tilkynna til Fiskistofu, sem getur stöðvað framsal kvóta sé það mat starfsmanna hennar að framseldur kvóti sé umfram veiðigetu framsalshafa.

Ekkert almennt eftirlit virðist með því hvort um málamyndargerðinga sé að ræða enda fer Fiskistofa ekki fram á afrit reikninga fyrir viðskiptinn og með öllu er óvíst og óljóst hvort virðisaukaskatti sé skilað að viðskiptum með kvóta. 

Telja verður að með þessu fyrirkomulagi á kvótaviðskiptum hafi Landsamband íslenskra útvegasmanna og félagsmenn þess félags gerst brotlegir við 10., 11. og 12. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Auk þess sem ætla verður að í þessu skipulagi felist óbeinn stuðningur íslenska ríkisins við þröngan hóp útvegsmanna, sem í skjóli einokunar og samráðs geta stýrt fiskveiðum og fiskvinnslu hér á landi. 

Félagsmenn í Landssambandi íslenskra útvegsmanna geta með sýndargerningum haldið uppi verði á kvóta og þar með skert samkeppnishæfni skipa án kvóta. Eigendur skipa án kvóta þurfa að greiða það verð fyrir kvótann sem kvótaeigendurnir setja upp hverju sinni. Verðinu ráð þeir einir.

1993 nr. 80 18. maí

2. gr. [Með peningaþvætti er í lögum þessum átt við þegar einstaklingur eða lögaðili tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings með broti sem er refsivert samkvæmt almennum hegningarlögum, svo sem auðgunarbroti eða [meiri háttar]1) skatta- eða fíkniefnabroti, tollalögum, lögum um ávana- og fíkniefni, áfengislögum og lyfjalögum. [Einnig er átt við þegar einstaklingur eða lögaðili tekur að sér að geyma, dylja eða flytja slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning af slíkum refsiverðum brotum.]1)
[Með ávinningi er átt við hvers kyns hagnað og eignir hverju nafni sem nefnast, þar með talin skjöl sem ætlað er að tryggja rétthafa aðgang að eignum eða öðrum réttindum sem meta má til fjár.]
1)
Skylt er þeim sem falla undir ákvæði þessara laga að veita alla nauðsynlega aðstoð til að ákvæðum laganna verði framfylgt.]2)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Ég var að skoða Hafró.is

Georg Eiður Arnarson, 17.3.2007 kl. 22:24

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Og hvað sástu merkilegt ?

Níels A. Ársælsson., 18.3.2007 kl. 00:47

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Þetta er ótrúlega rotið allt saman.

Georg Eiður Arnarson, 18.3.2007 kl. 11:54

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það er einn maður á íslandi sem stjórnar og ræður allri útgerð, hagsmunasamtökum og sjávarútvegsráðherra. Hann heitir Þorsteinn Már Baldvinnsson. Ef þú vilt ræða eitthvað um sjávarútveg þá snýrðu þér beint til Mása.

Níels A. Ársælsson., 18.3.2007 kl. 14:07

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Mig langar ekki að ræða við mann sem hefur marg líst því yfir að það eygi að leifa útlendíngum að kaupa kvóta hér til að flýta fyrir hagræðinngunni. Þorsteinn Már er ekki maður að mínu skapi.

Georg Eiður Arnarson, 18.3.2007 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband