17.4.2008 | 23:11
Nú á að stela 25% af lífeyrissjóðum landsmanna til bjargar bönkunum
Fréttablaðið 17. apríl 2008.
Frumvarp fjármálaráðherra um lífeyrissjóði fellur í grýttan jarðveg hjá verkalýðshreyfingunni, sem segir að með því verði eignir landsmanna í lífeyrissjóðum ofurseldar skortsölu. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða kannast ekki við að lífeyrissjóðir hafi beðið um lögin."Frumkvæði að þessari lagasetningu er ekki frá okkur komið," segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem heimilar lífeyrissjóðum að lána allt að 25 prósentum af hreinni eign sinni, í allt að ár í senn. Lánin þarf að tryggja og mega sjóðirnir taka við verðbréfum sem verslað er með á markaði sem tryggingu. Þessi viðskipti þurfi enn fremur að fara í gegnum kauphöll eða viðurkennda verðbréfamiðlun.Hrein eign lífeyrissjóðanna er nú ríflega 1.600 milljarðar króna, samkvæmt tölum Seðlabankans.
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, leggst gegn þessum ákvæðum frumvarpsins og segir þau bjóða heim möguleika á skortsölu á eigum lífeyrissjóðanna, það er að menn hagnist á því að eignir lífeyrissjóðanna rýrni.Frumvarpið er nú til umræðu í efnahags- og skattanefnd Alþingis.
Hrafn Magnússon segir að lífeyrissjóðirnir mæli almennt ekki á móti frumvarpinu, enda sé fleira í því en þetta, en menn þurfi að stíga varlega til jarðar. "Við þekkjum ekki hver reynslan er af viðlíka fyrirkomulagi erlendis, en það má benda á að hægt er að fá nokkrar þóknunartekjur af svona lögðu."
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir fulltrúum launþega lítast illa á frumvarpið. "Frumvarpið er lagt fram án samráðs við þá sem eiga lífeyrissjóðina," segir Gylfi og bendir á að lífeyrismál séu hluti kjarasamninga. "Það væri eitt, sem liður í sérstökum aðgerðum. að heimila lán á eigum lífeyrissjóða með ríkisábyrgð, en það er allt annað mál að leyfa þetta með veði í eignum sem skráðar eru á markaði.
Þetta er eign landsmanna og það er undarlegt að veita eigi heimild til þess að lána eitthvað sem aðrir eiga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Vilt þú að sjávarbyggðunum verði skilað aftur nýtingaréttinum á fiskimiðunum ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 763847
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
- Svona verður verkfall lækna á Akureyri
- Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn systur sinni
- Einn fluttur á slysadeild: Miklar umferðartafir
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
Erlent
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
Athugasemdir
Úff afhverju er svona lítið talað um þetta?
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 18.4.2008 kl. 14:15
Það er Nanna vegna þess að þeir sem um hlutina véla vilja ekki upplýsa fólkið.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 18.4.2008 kl. 14:43
http://deiglan.blog.is/blog/deiglan/entry/508441/
Jóhannes Ragnarsson, 18.4.2008 kl. 17:33
Það er verið að styðja við bankana og opna á að véla með eigur Lífeyrissjóðanna, ódýrara að leika sér með þetta fé, eftir að búið er að loka á bankana erlendis, vegna áhættuhegðunar.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 18.4.2008 kl. 18:53
Já Þorsteinn, það er tilgangurinn og ekki hægt að koma hreint fram og segja fólkinu sem raunverulega á þetta fé, hvað er um að vera.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 18.4.2008 kl. 19:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.