27.11.2008 | 13:11
Mikil náð er að eiga Ólaf
Góður maður Ólafur Ragnar Grímsson.
Nú hefur hæstvirtur og góðhjartaður forseti vor eðlilega sent indversku þjóðinni samúðarkveðjur vegna þeirra hroðalegu illvirkja sem hryðjuverkamenn hafa unnið í landi þeirra.
Ég bíð eftir því að forseti "allra íslendinga" sendi íbúum sjávarþorpa Íslands samúðarkveðjur og biðjist afsökunar fyrir hönd íslenzka lýðveldisins á þeim hryðjuverkum og ómældu þjáningum sem íslenzkir glæpamenn hafa unnið í sjávarþorpunum í skjóli kvótakerfisins sl, 25 ár.
Forsetinn sendir Indverjum samúðarkveðjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Vilt þú að sjávarbyggðunum verði skilað aftur nýtingaréttinum á fiskimiðunum ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 763844
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott hjá þér! Annars er það afar mikilvægt þegar forseti nýtir viðkvæmt málfrelsi sitt innan lands um pólitísk mál að hann sé glöggur á tímasetningar. Þessu má líkja við að skjóta rjúpu á flugi eða skjóta hnísu í "áhlaðanda" á litlum trillubáti.
Hann gæti t,d. komið þeirri skoðun að (ef hann hefur skoðun á þessu máli) þegar hann ræðir mannréttindamál í umræðu íslensku þjóðarinnar á breiðum grunni erlendis.
Hann hefði t,d, í hástemmdum ræðum í akademiskum heiðursboðum erlendis getað tengt hina metnaðarfullu útrás íslenskra fjármálasnillinga við þá augljósu staðreynd að hún var í upphafi fjámögnuð með gjafakvótanum og þrælsgjöldum leiguliða.
Og að skuggahliðar þessarar útrásar mætti sjá í íslenskum sjávarplássum þar sem slitur af gluggatjöldum blöktu í vindi út um brotnar rúður yfirgefinna húsa. Og þau einu hamarshögg sem þar heyrðust kæmu frá mönnum sem negldu hlera fyrir glugga á íbúðum sem enginn vildi kaupa.
Árni Gunnarsson, 27.11.2008 kl. 22:57
Hún hlýtur að koma eftir helgi. Á ekki allt að koma eftir helgi, það segja Geir og Solla?
Hallgrímur Guðmundsson, 27.11.2008 kl. 23:27
Hérna Nilli hann kom nú á bryggjuna á Suðureyri hérna um árið, en man kannski ekki eftir því.
Sigurbrandur Jakobsson, 28.11.2008 kl. 20:56
það má með sanni segjast
Áslaug Sigurjónsdóttir, 28.11.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.