28.3.2009 | 13:37
Minni Vestfjarða
Sú var tíð að sjávarþorpin á vestfjörðum voru eins og blóm í eggi. Iðandi mannlíf, menning og sagan út um allt.
Eins og segir í sögu Hrafna flóka. "smjör draup af hverju strái" eilíft vor í lofti og bjartsýnin réð ríkjum hjá hverri sálu.
Fólkið sem bjó í þorpunum byggði sér bæi, skóla, bryggjur, flugvelli og vegir voru lagðir. Útvegsbændur byggðu sér öflug skip og fiskhús af flottustu hönnun þess tíma.
Fræknustu sjómenn og fengsælustu skipstjórar við N Atlandshaf mönnuðu flota vestfirðinga sem var sá öflugasti og best búni í víðri veröld. Valinn maður í hverju rúmi.
Harðduglegir íbúar þorpana höfðu nóg að bíta og brenna og atvinnan var meiri en næg fyrir alla.
Erlendir sem íslenzkir farandverkamenn komu í þorpin til að aðstoða heimamenn við að gera verðmæti úr öllum þeim afla sem barst að landi.
Frystihús, salthús, skreiðarhús, fiskimjölsverksmiðjur og lýsisbræðslur voru í hverju þorpi sem möluðu samfélaginu og eigendum sínum gull allt árið.
Peningarnir flóðu frá útlöndum líkt og í lækjum og hagsældin í þorpunum var mikil.
Árið var 1983: Fiskifræðingar og stjórnmálamenn fundu það út að þorskstofninn við Ísland væri ofveiddur.
Þetta sama ár var komið á kvótakeffi við stjórn fiskveiða. Vestfirðingar vöruðu við slíkum bölsýnis spám og töldu að um náttúrlega niðursveiflu væri að ræða.
Vestfirðingar vöruðu við markaðsdrifnu kvótakerfi í fiskveiðum og að sjávarþorpin við Ísland gætu nánast þurkast út þar sem fiskveiðiheimildirnar færðust á hendur örfárra braskara sem gerðu sér sjómennina að þrælum og leiguliðum.
Árið er 2009.
Sjávarþorpin á Vestfjörðum og víðast hvar á landinu eru eins og eyðibýli. Skipin upp höggvin, brend, sökt, eða þeim hreinlega verið stolið eins og mörg dæmin sanna.
Tilvitnun í Íslandsljóð Einars Benediktsonnar.
Þú fólk með eymd í arf !
Snautt og þyrst við gnóttir lífsins linda,
litla þjóð, sem geldur stórra synda.
Tilvitnun lýkur.
Örfá sjávarútvegsfyrirtæki eru eftir á Vestfjörðum, nánast allur flotinn er farinn.
Stór hluti af íbúunum er flúin eða við það að flýja.
Þeir sem fara og eru farnir eru flest allir meira og minna gjaldþrota og eignarlausir.
Þeir sem eftir hokra verða að sætta sig við sjálfskipuð yfirvöld þorpanna sem haga sér flest líkt og Jóhann Bogesen stórversír á Óseyri við Axafjörð forðum daga í söguni Sölku Völku.
Það er komið meira en nóg af ofbeldi sem íslenzk stjórnvöld hafa farið fram með gegn íbúunum í sjávarþorpum vestfjarða.
Það verður aldrei sátt né friður á meðan ekki verður snúið til réttlætis og fiskveiði auðlindinni aftur skilað. Sjá myndband hér:
Kvótakerfið er krabbamein sjávarútvegsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:29 | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 763845
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vil benda þér á kæri Vestfirðingur og kvóta andstæðingur að ef að fyrirhugað frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur nær fram að ganga þá opnast leið til þess fyrir okkur almenning í þessu landi að koma þessu kvótakerfi af höndum okkar því við höfum alltaf verið í miklum meirihluta sem höfum verið á móti þessu. Það hefur aðeins verið flokksræðið sem hefur stoppað það af að það skuli ekki fyrir löngu búið að afnema þetta óréttláta og vonda fiskveiðistjórnunar kerfi.
Að lokum var gaman að sjá þarna mynd af stórhöfðingjanum Magnúsi í Tungu, en ég var eitt sumar á sjó með honum sem var eiginlega yfirnáttúruleg lífsreynsla.
Kærar kveðjur
Gunnlaugur I., 28.3.2009 kl. 15:13
Sæll félagi kíki alltaf reglulega inn hjá þér og alltaf jafn ánægður með lesturinn.Gaman að sjá mynd af hinum gamla Sæhauk Magnús frá Tungu.Þeir fara ekki margir í"fötinn"hans.Kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 28.3.2009 kl. 18:50
Það er mín spá að ríkið verði búið að yfirtaka allar aflaheimildir innan tíu ára, en kvótakefið verði haft áfram. Þá verður allur kvóti kominn til R.Víkur og enginn kvóti verður eftir á Vestfjörðum.
Sigurgeir Jónsson, 30.3.2009 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.