27.11.2009 | 14:09
Ábending til sjómanna
Sjómenn vita sem er að Sjómannafélag Íslands hefur ekkert gert fyrir þá síðastliðin mörg ár annað en að horfa aðgerðarlausir á LÍÚ og fyrrum ríkisstjórn Sjálfstæðis og Framsóknarflokks vaða yfir mannréttindi sjómanna.
Það er mjög gott mál ef sjómenn sigla í land til að mótmæla á réttum forsendum.
Sjómenn ættu að mótmæla áralöngum mannréttindabrotum í kvótakerfinu, Verðlagsstofu skiptaverðs sem gefur útgerðum 50-70% afslátt af fiskverði og krefjast þess að allur fiskur fari á markað.
Það yrðu raunverulegar kjarabætur sem mundu skila sjómönnum líkast til 120% launahækkun.
Hvetja sjómenn til að sigla í land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 58
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er alger forsenda þess, ef afnema á sjómannaafsláttinn með lögum, að sömu lög tryggi að útvegsmenn greiði ígildi hans í hærri launum.
Það er ekki hægt að ætla sjómönnum sjálfum að sækja það til LÍÚ eins glæsilega og það hefur gengið undanliðin ár með stöðugar lagasetningarhótanir yfir höfðum í hverju verkfalli.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.11.2009 kl. 15:33
Af með kostnaðarhlutdeildina, það þekkist ekki hjá neinni starfstétt á íslandi öðrum en sjómönnum að hún sé látin borga rekstrarkostnað fyrirtækisins sem unnið er hjá.
Til frekari útskýringa á kostnaðarhlutdeild.
Dregin eru 30% af brúttó aflaverðmæti áður en farið er að hugsa um hlut sjómanna.
Kostnaðarhlutdeild sveiflast upp og niður í prósentum talið eftir heimsmarkaðsverði á olíu.
Í dag þyrfti olíuverð að lækka um meira en helming áður en prósentutalan fer að lækka.
Er vinnandi fólk tilbúið að gefa eftir 30% af launum sínum fyrir rafmagni, heitu og köldu vatni sem og olíu og bensínkostnaði vinnuveitenda sinna, ég bara spyr?
Þessi óskapnaður var settur á til bráðabyrgða eins og svo margt annað í þessu guðsvolaða þrælaríki.
Hallgrímur Guðmundsson, 27.11.2009 kl. 19:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.