4.12.2009 | 19:13
Átumein í líkama mannfélagsins
Auðvaldið, sem lifir á ránglæti, heimsku og yfirgángi, þarf ekki að ætla sér þá dul að kenna oss, upplýstum alþýðumönnum, neinn sannleika.
Þeir sem halda fyrir yður gæðum lífsins og banna yður að vinna nytjar jarðarinnar, það eru fjandmenn Guðs og yðar, og yður ber til þess heilög skylda að útmá þá af ásýnd jarðar.
Þeir eru átumein í líkama mannfélagsins. Þeirra vegna eru börn yðar blóðlaus og mergsogin. Þeir hafa hrifsað brauðið frá munnum barna vorra og rænt síðustu skyrtunni af foreldrum vorum örvasa Tilvitnun í Alþýðubókina.
Ég vil minna á orð Sverris Hermannssonar sem hann viðhefur í æviminningum sínum Skuldaskil bls 47. Tilvitnun: Það er mín skoðun að Finnur Ingólfsson sé einn gerspiltasti stjórnmálamaður á Íslandi sem sögur fara af.
SMS skilaboð til Finns birt á Wikileaks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:40 | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 763845
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það mætti halda, að félagi Laxness, hafi haft umræddann skítaklepra, Finn Ingólfsson og félaga hans, í huga þegar hann skrifaði þennan texta.
Hvað varðar ummæli Sverris Hermannsonar um gripinn, þá er þar engu orði ofaukið.
Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 19:51
Takk fyrir tilvitnunina í Alþýðubókina.
Ég var ekki nema 16 eða 17 ára þegar ég sá í gegnum smeðjulegt glottið á Finni Ingólfs að maðurinn væri stórhættulega spilltur. Gleymi aldrei risastóru kosningaskilti þar sem hann stóð með Steingrími Hermannssyni niðri á Lækjartorgi. Svipurinn var álíka og þessi sem Hannes Smárason getur ekki afmáð af smettinu - Alger fyrirlitning fyrir fólki og skeytingarleysi. Við sjáum hvert þessir menn komu okkur. Fyrir mitt leyti,á þessum tíma gat ég ekki með nokkru móti skilið hvernig nokkrum manni dytti í hug að kjósa þennan mann sem bar skítlegteðli sitt svona utan á sér.
Rúnar Þór Þórarinsson, 4.12.2009 kl. 20:18
Sammála!!!
Þráinn Jökull Elísson, 4.12.2009 kl. 20:21
Finnur er fæddur glæpamaður og krepptur í framan af spillingu. Hann hefur aldre reynt að fela það heldur frekar an aðrir siðspilltir framsóknarmenn.
Það er hinsvegar athyglisvert að millistjórnendur bankana skuli ennþá sinna sínum störfum. Þetta er vanhæft sakafólk upp til hópa með annsi mikið svindl á samviskunni. Þetta eru samviskulausir mammon dýrkendur sem einungis hugsa um það að skara eld að eigin köku.
Það þyrfti að hreinsa þetta pakk út úr öllum bönkunum, það gengur bara ekki að reka bankana með vanhæfum glæpamönnum. Það endar bara með óskökpum.
Guðmundur Pétursson, 5.12.2009 kl. 07:25
....og Arion er kominn í hendur þeirra sem áttu hann í fyrstu lotu, nú í gegnum vogunarsjóði, sanniði til.... sá á fé sem Finnur, eða þannig...!
Ómar Bjarki Smárason, 6.12.2009 kl. 01:23
Það hefur verið á vitorði allra að maðurinn er ekki allur sem hann er séður. Hann hefur forðast viðtöl . En er í mun að láta sjá sig sem mikinn hestamann sbr reið yfir landið á ská frá Langaanesi að Reykjanesskaga. Var því gert afar góð skil í morgunblaðinu og í sjónvarpi ríkisins. Stórt býli hefur risið austan fjalls og ekkert til sparað. En allt er fengið með óheiðarleik, svikum og ódrengilegheit sem svo mjög hefur markað framgöngu hans í íslensku þjóðlífi.
Hér vantar sárlega gapastokk og opinbera hýðingu á Austurvelli . Einnig að réttlætinu verði fullnægt og maðurinn gerður útlægur úr íslensku þjóðfélagi og látin sæta eignaupptöku.
Árni Þór Björnsson, 7.12.2009 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.