Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
30.4.2007 | 14:15
Þjófar handsamaðir í sjávarþorpi vestur á fjörðum
Frétt og ekki frétt:
Lögreglan segir, að þjófarnir hafi reynt að malda í móinn en frásagnir þeirra hafi verið lítt trúverðugar, ekki síst í ljósi þess að öryggismyndavélar eru í umræddum skóla en upptakan af athæfi þjófanna var bæði skýr og greinileg og kom að mjög góðum notum við rannsókn málsins.
Ný frétt gæti litið svona út:
Lögreglumenn af svæðisstöðinni á Vestfjörðum handtóku tvo karlmenn á þrítugsaldri fyrir helgina en mennirnir höfðu stolið stærstum hluta aflaheimilda úr einu sjávarþorpinu. Lögreglan segir, að þjófarnir hafi reynt að malda í móinn en frásagnir þeirra hafi verið lítt trúverðugar.
Þjófnaðurinn telst að fullu upplýstur og verður málið sent til ríkislögreglustjóra til meðferðar.
Þjófar handsamaðir í Grafarvogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.4.2007 | 13:25
Sjávarbyggðinnar brenna
Fréttavefur Morgunblaðsins greindi frá í gær. Þar segir að slökkviliðið hefði gjarnan viljað slökkva þennan eld en þegar menn hafi leyfi sýslumanns og lögin bak við sig þá geti slökkviliðið lítið gert nema kalla eftir breytingum á viðkomandi lögum.
Svona gæti ný frétt um sjávarbyggðinnar litið út:
Sjávarþorpin brennd með leyfi stjórnvalda, kallað eftir lagabreytingum
Fréttavefur nilli.blog.is greindi frá í gær. Þar segir að íbúarnir hefðu gjarnan viljað slökkva þennan eld en þegar LÍÚ hafi leyfi stjórnvalda og lögin bak við sig þá geti íbúarnir lítið gert nema kalla eftir breytingum á viðkomandi lögum.
Sinueldar kveiktir með leyfi sýslumanns; kallað eftir lagabreytingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 16:27
Smá brandari til að létta lund
Á hippatímabilinu svonefnda gaf karlkyns blómabarn einni vinkonu sinni gallabuxur í jólagjöf. Og þar sem þessi friðelskandi náungi vildi vera dálítið frumlegur hafði hann skrifað "gleðileg jól" á aðra buxnaskálmina en "gleðilegt nýár" á hina.
Eftir að vinkonan hafði tekið upp gjöfina sendi hún gefandanum svohljóðandi kort:
Kæri Óli. Vertu velkominn á milli jóla og nýárs.
Þín Nína.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2007 | 14:29
Færeyja annáll
Vit hava seinastu árini verið vælsignaði við stórum vøkstri og framburði í landi okkara. Alt hevur gingið við góður fiskiskapur, høgir prísir, vøkstur og framburður á øllum økjum. Seinasta árið hevur ikki hilnast eins væl.
Vánaligur prísur á rækjum, laksi, hýsu og upsa eins og trupulleikar í alivinnuni hevur gjørt, at vit fyri fyrstu ferð seinastu sjey árini hava eina lítla niðurgongd í okkara búskapi.
Vit hava ein væl útbygdan fiskiflota og góð virkir á landi, og vit kunnu frøðast um, at væl hevur gingist hjá parti av fiskiflotanum í ár. Tó hava rækjuskipini havt tað sera tungt.
Vónandi fara prísirnir á rækjum, hýsu og upsa at hækka aftur, soleiðis at hesin parturin av flotanum fer at koma fyri seg í nýggja árinum.
27.4.2007 | 14:07
Skiljanlega
Hér vantar upp á tekjur bæjarsjóðs Ísafjarðarbæjar hátt í 500 milljónir króna samkvæmt lauslegum útreikningum mínum. Stafar þetta fyrst og fremst af lögunum um Verðlasstofu Skiptaverðs. Ríkissjóður og sveitarfélög um land allt verða af milljörðum króna í sköttum vegna handstýrðar verðmyndunar á sjávarafla í gegnum Verðlagsstofu Skiptaverðs. Sjómenn á fiskiskipum sem landa afla hjá eigin fiskvinnslu hafa í mörgum tilfellum 50% lægri laun heldur en sjómenn á skipum sem landa á markað. Engin verðmyndun er á afla smábáta og hafa þeir því frítt spil á hendi varðandi uppgjör til sjómanna.
Beini þeim tilmælum mínum til Halldórs Halldórssonar bæjastjóra að hann láti ransaka hversu miklum tekjum Ísafjarðarbær hefur orðið af síðan 2002 vegna setningar laga um Verðlagsstofu Skiptaverðs.
Heildarrekstrartekjur Ísafjarðarbæjar 2.240 milljónir króna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2007 | 21:09
Íslenzkur grútarprammi í höfn í Bergen ?
Frétt eða ekki frétt !
Gæti hugsast að skýringin á ódauninum fylgi Íslenzkum grútarpramma frá Samherja hf, eða eitthverju álíka fyrirbæri ? Það er þekkt staðreynd að þegar góðfiskur, þorskur, ufsi, karfi og makríll (meðafli utan kvóta) blandast skítfiski sem veiddur er til bræðslu, þá verður gerjun og niðurbrot ensíma svo hröð að myndast ógurleg skítabrækja með hryllilegum dómsdagsdaun.
Málið er ekki upplýst, en verið er að ransaka ábendingar frá Íslandi.
Óútskýrð ólykt í Bergen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 18:25
En kvótahundurinn ?
Svona gæti fréttin litið út: Kvótahundurinn Fisk nr, 23 sem er í eigu Fiskistofu, vann fyrir harðfiskinum sínum í nótt, þar sem hann var við þjálfun á Húsavík ásamt þjálfara sínum, Jóni Hreggviðssyni.
Fisk nr, 23 stóð að verki áhöfnina á Sæskuðinu ÞH-69, við umtalsverða löndun á svörtum fiski. Flytja þurfti lyftaramanninn á Héraðssjúkrahúsið á Aureyri til aðhlynningar en hann hlaut slæmt bit á kaf í hægri rasskin. Málið telst upplýst.
Svo mörg voru þau orð.
Fíkniefnahundur fann hass í bíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 14:00
Góður Guð gæti drengsins
ljúfi faðir þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.
Fannst meðvitundarlaus í Sundlaug Kópavogs í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.4.2007 | 13:35
Gefum út veiðileyfi á þetta hvalfriðunar lið
Anthony Hopkins tekur þátt í herferð gegn hvalveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2007 | 12:20
Bjartsýnasti maður í heimi fallhlífarlaus á leið til jarðar
Hvernig væri að komast í heimsmetabók Guinnes sem bjartsýnasti maður í heimi til dæmis með því að stökkva út úr flugvél fallhlífarlaus í 5 km hæð og taka sénsinn á því að fá lánaða fallhlíf á leiðinni niður ?
Þessu má líkja við Íslenzka fiskveiðistjórnunarkerfið. Að reyna að byggja upp fiskistofnana í markaðsdrifnu stjórnkerfi við fiskveiðar er ekki minni bjartsýni og óráðshjal heldur en að kasta sér út úr flugvél og vonast til að fá lánaða fallhlíf á leiðinni til jarðar.
Klipping í háloftunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 1
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 764330
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 53
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Breytti landslagi markaðarins
- Krísur eru álagspróf fyrir vörumerki
- Arion áætlar um 8,3 milljarða hagnað
- Vill ekki endurvekja ÍL-sjóðsfrumvarpið
- David Léclapart engum öðrum líkur
- Hagræðing þýðir sókn
- Ferðaþjónustan haldi dampi
- Dauðafæri að komast nær markaðinum
- Dagný nýr framkvæmdastjóri Brúar
- Svipmynd: Mikil samkeppni um tíma kvenna