Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
29.11.2010 | 12:00
Sektir sem hvetja til brottkasts og framhjálöndunar
Hér höfum við enn eitt dæmið um hversu galið það er að stjórna fiskveiðum með aflamarki.
Þeir sjómenn sem hafa brennt sig á þessu soðinu núna munu væntanlega ekki gera það aftur og alls ekki að gamni sínu heldur grípa til viðeigandi ráðstafana.
Þessari vitleysu með skömmtun á ígildum þorsks verður að linna og almennar takmarkannir látnar gilda í staðin, sbr. tímatakmarkanir, stærð báta og hámark á fjölda handfærarúlla.
Frændur okkar í Færeyjum kunna skil á þessu.
![]() |
Nærri 11 milljóna sekt fyrir ólögmætan afla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.11.2010 | 15:17
Þar fauk kvótakerfi LÍÚ
Með lögfestingu kvótakerfisins var afnumin hina forna meginregla íslensks réttar um almannarétt til fiskveiða.
Með kvótakefinu, sem byggt er upp á veiðiheimildum ,,aflahlutdeild sem sjávarútvegsráðuneytið úthlutaðar til skipa og helst óbreyttar milli ára og sérstökum veiðileyfum ,,aflamarki eða ,,krókaaflamarki hafa heimildir til velflestra fiskveiða í atvinnuskyni orðið að afmörkuðum og framseljanlegum sérréttindum útgerðarmanna.
Ráða þeir því í raun í dag hvaða sjávarbyggðir eða -byggðalög lifa og dafna; hvar verðmæti eigna helst og hvar þær verða lítils eða einskis virði.
Kvótakefið fær útgerðarmönnum þannig mikið og jafnframt ógnvænlegt vald; vald sem leitt hefur til fólksflutninga, eignaskerðinga og félagslegra hörmunga, eins og reyndar spáð var í umsögnum fulltrúa fiskvinnslunnar, þegar frumvarpið var í smíðum.
Í kjölfar dóms hæstaréttar í málinu nr. 145/1998: Valdimar Jóhannesson gegn íslenska ríkinu, sem kveðinn var upp í desember 1998 var sú breyting gerð að allir eigendur haffærra skipa geta fengið almennt veiðileyfi sbr. 4. og 5. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, eins og þeim var breytt með lögum nr. 1/1999.
Til að geta nýtt almennt veiðileyfi sitt og fá notið stjórnarskrár bundins atvinnufrelsis þurfa þeir útgerðamenn, sem fá eða geta fengið almennt veiðileyfi, að fá kvóta framseldan frá handhöfum hans.
En þeir, sem hafa fengið þessum gæðum úthlutað frá stjórnvöldum mega framselja kvótann tímabundið eða varanlega kvóta frá þeim aðilum að nokkru eða öllu leyti.
![]() |
Veiðiheimildir gegn gjaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.11.2010 kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2010 | 08:21
Einokun og kúgun LÍÚ - meðvirkni samkeppniseftirlitsins
Innan vébanda Landsambands íslenskra útvegsmanna er rekin svokölluð kvótamiðlun LÍÚ.
Kvótamiðlun LÍÚ virðist hvorki hafa sérstakar samþykktir né heldur sjálfstæðan fjárhag, þó hún á hinn bóginn hafi sett sér gjaldskrá vegna kvótasölunnar.
Virðist kvótamiðlun LÍU því vera einhvers konar deild innan LÍÚ, sem annast miðlun kvóta fyrir félagsmenn sína.
Kvótamiðlun LÍÚ virðist vera einhvers konar samráðsvettvangur útgerðafélaga innan vébanda LÍÚ, þar sem handhafar kvótans geta með samstilltum aðgerðum haldið uppi háu kvótaverði til útgerða án kvóta.
Þá fjármuni sem handhafar kvótans fá við framsal hans geta þeir síðan nýtt í samkeppni sinni um kaup afla á fiskmörkuðum við fiskverkendur án útgerðar eða útgerðir án kvóta.
Handhafar kvótans ráðið því hver fær og getur nýtt rétt sinn til fiskveiða í atvinnuskyni og hver afkoma þeirra og fiskverkenda er.
Hluta kvóta má flytja milli ára, sem gerir það að verkum að aldrei verður umfram framboð.
Auk þess sem handhafar kvótans geta með málamyndafærlsum milli útgerða sinna búið til viðskipti.
Ekkert eftirlit er af hálfu stjórnvald með kvótaviðskiptum, ef frá er talið að þau ber að tilkynna til Fiskistofu, sem getur stöðvað framsal kvóta sé það mat starfsmanna hennar að framseldur kvóti sé umfram veiðigetu framsalshafa.
Ekkert almennt eftirlit virðist með því hvort um málamyndargerðinga sé að ræða enda fer Fiskistofa ekki fram á afrit reikninga fyrir viðskiptinn og með öllu er óvíst og óljóst hvort virðisaukaskatti sé skilað að viðskiptum með kvóta.
![]() |
Vilja að allar sjávarafurðir verði unnar á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.11.2010 | 11:22
LÍÚ valið bestu samtök heims
Landssamband íslenskra útvegsmanna var í nýlegri könnun valið bestu félagasamtök veraldar.
Við sama tækifæri var hin umdeilda samningaleið valin besta leið allra tíma um leið og fyrningarleiðin svokallaða var valin fábjánalegasta della veraldarsögunnar.
Könnunin var gerð á heimili Friðriks Arngrímssonar á svokölluðu Veiðimanns-spilakvöldi útgerðarmanna, og var svarhlutfall 90% en einn gestanna skildi ekki spurningarnar.
Fengið að láni hjá Baggalúti
2.11.2010 | 14:11
Alþjóðlegur förðunarfræðingur
Nú hefur fjórflokkurinn ráðið Árna Matth, sem alþjóðlegan förðunarmeistara í að fela stórfelda galla aflamarkskerfa.
![]() |
Árni ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri FAO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
-
Ársæll Níelsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Hafdís Ösp
-
Jón Kristjánsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þórður Sævar Jónsson
-
Lýður Árnason
-
Ólafur Ragnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Valmundur Valmundsson
-
Árni Gunnarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Ívar Pálsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Magnús Jónsson
-
Jens Guð
-
Jón Valur Jensson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.2.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 764540
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Kristrún: Fer ekki á milli mála hver réðst á hvern
- Við sátum þar bara eins og skilnaðarbörn
- Líf segist ekki bjartsýn
- Borgarstjóri lék einleik: Kom flatt upp á stjórnina
- Sanna náði ekki kjöri í fyrstu tilraun
- Spennandi að vera í minnihluta
- Vilja reisa 30 þúsund fermetra verslunarkjarna
- Furðar sig á Jóni Pétri
- Daði fellur frá áformum um breytta tollflokkun
- Óljóst hvað nýjar aðgerðir meirihlutans munu kosta
Erlent
- Stunguárás við minnisvarða um helförina
- Trump vill fá Pútín og Selenskí saman á fund
- Segja að Selenskí muni skrifa undir samninginn
- Trump: Selenskí þarf ekki að vera með
- Microsoft finnur nýjan fasa efnis
- Grimmilegt brot á vopnahléssamningi
- Sex fangaverðir í New York ákærðir fyrir morð
- Megi framkvæma vopnaleit án gruns
- Ekki um lík Shiri Bibas að ræða
- Sprengingar í strætisvögnum í Ísrael
Fólk
- Klámstjörnur sagðar hafa logið um óléttur
- Ég var mikill pönkari og alltaf með puttann á lofti
- Við erum virkilega spennt að kynna Wool á Series Mania
- Nýtt lag frá Kaleo
- Seldist upp á Noruh Jones og Bryan Adams
- Oddur Sigurðarson valinn fyndnasti háskólaneminn
- Floni bað Daniil um að syngja inn á hræðilegt lag
- Náði þyngdartapsmarkmiði mínu
- Nýja kærastan er 23 árum yngri
- Rómantíkin allsráðandi hjá Belichick og Hudson
Íþróttir
- Burst í rigningunni í Leicester (myndskeið)
- Ungur knattspyrnumaður lést rétt fyrir leik
- Stórkostleg tilþrif Viktors Gísla (myndskeið)
- Frakkar með fyrsta sigurinn í riðli Íslands
- Uppselt á stórleikinn í Höllinni
- Leicester steinlá á heimavelli
- Stóð vel fyrir sínu í Portúgal
- Blómstrar eftir brotthvarf Viggós
- Hafnfirðingurinn fór á kostum
- Þetta er drullusvekkjandi
Viðskipti
- Fréttaskýring: Hvað eru smávegis tollar á milli vina?
- Umtalsverðar verðhækkanir á kaffi
- Stjórnir Heimkaupa og Samkaupa undirrita samrunasamning
- Tilkynning frá Play: Harma ónákvæmar tilkynningar Kauphallar
- Hlutabréfaverð í Play lækkaði um 16,76%
- Eiginfjárstaðan muni breytast lítið milli ára
- Frekari upplýsingar frá Kauphöllinni vegna athugunarmerkingar Play
- Yfir 110 milljarðar til almennings frá bönkunum
- Kauphöllin tekur ekki afstöðu til rekstrarhæfis Play
- Play athugunarmerkt í Kauphöll