Leita í fréttum mbl.is

Miskunarsami samverjinn

Gerð var könnun á vegum Gallup árið 2000 á því hvað Íslendingar meti helst í eigin fari og annarra.

Tímarit Máls og menningar, 2. tbl. 2000 túlkar niðurstöðunar svo að nýju íslensku höfuðdyggðirnar séu:

Hreinskilni, dugnaður, heilsa, heiðarleiki, jákvæðni, traust, fjölskyldu- og vináttubönd.

Hvar er nú miskunarsami samverjinn í Íslendingnum ?


mbl.is Kaffistofu Samhjálpar lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jihad

Hugtakið "jihad" birtist oft í Kóraninum, sem er helgirit múslima. Orðið jihad merkir barátta eða átök.

Útlegst á íslensku sem "heilagt stríð" sem gefur ekki rétta mynd af þessu fyrirbæri. Íslensku orðin "heilagt stríð" eiga sér ekki samsvörun í arabísku.

 


mbl.is Þrír Palestínumenn féllu í átökum við ísraelska hermenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangelsun jarðabúa

Samkvæmt upplýsingum frá the European Institute for Crime Prevention and Control, sem er stofnun sem tengist Sameinuðu þjóðunum voru tæplega níu milljónir jarðarbúa í fangelsi í október 2002.

Og að lokum þetta.

Eins og Cato hinn gamli hefði sagt; "Auk þess legg ég til að Samherja hf, verði eytt !"


mbl.is Handrukkarar í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konungur mildaði dauðarefsingar

Eftir 1830 var tugur Íslendinga dæmdur til dauða í Hæstarétti. Flest málin spruttu á einhvern hátt af óheimilu kynlífi: Konur höfðu framið dulsmál, reynt að leyna barnsburði með því að fyrirfara börnum sínum. Dæmt var fyrir blóðskömm, óheimilt kynlíf vegna fjölskyldutengsla. Karlmaður drap kornungt barn sem honum hafði verið kennt, annar drap konu sem var ólétt eftir hann.

En konungur mildaði refsingu allra svo að enginn var tekinn af lífi samkvæmt dómi. Dauðarefsing var síðan afnumin í tveimur áföngum. Árið 1869 voru sett ný hegningarlög, í aðalatriðum í samræmi við ný dönsk lög, og var þá felld úr lögum dauðarefsing fyrir dulsmál og blóðskömm. Árið 1928 var dauðarefsing afnumin með öllu.


mbl.is Spennusagnahöfundur skrifaði bók um morð sem hann framdi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mælst er til

.....að Magnús Þór Hafsteinsson verði ráðinn framkvæmdarstjóri Frjálslynda flokksins. Hann á skilið að fá þessa stöðu.
mbl.is Ráðning framkvæmdastjóra Frjálslynda flokksins ekki frágengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fornfræga Etna

Fá eldfjöll í heiminum eiga eins langa skráða gossögu og Etna eða allt aftur til 1500 fyrir Krist. Bæði grísk og rómversk skáld, svo sem Hesíód, Pindar og Virgil skrifuðu um gos í Etnu, og hjá Grikkjum urðu til goðsögur tengdar fjallinu.

Ein sagan gekk út á það að í Etnu væri smiðja eldguðsins Hefestosar og önnur var þess efnis að undir fjallinu lægi skrímslið Tífon sem kæmi jörðinni til að titra þegar það bylti sér.


mbl.is Etna ræskir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegurð og ekki fegurð

Róttækir raunhyggjumenn (empíristar) líta svo á, að þar sem sérhver reynsla sé afstæð, einkaleg og persónubundin, hafi hver maður sinn smekk, og að um hann verði ekki deilt.

Það er ekkert slíkt til sem heitir fegurð. Það sem einum finnst fagurt finnst öðrum ljótt, og við það verður að láta sitja.


mbl.is Karlar vilja fegurð en konur leita ríkidæmis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENIGMA

Orðið "enigma" þýðir ráðgáta. Nafnið Enigma er hins vegar tengt mjög fullkominni dulmálsvél sem Þjóðverjar notuðu í síðari heimsstyrjöldinni. Hún var svipuð ritvél að stærð og hægt var að flytja hana auðveldlega á milli staða. Með henni mátti auðveldlega...

Fullréttisorð

Á miðöldum var til hugtakið (ergi) sem hafði mjög neikvæða skírskotun. Í því fólst að karlmennska manna var dregin í efa og þeir taldir hegða sér kvenlega, vera ragir eða blauðir. Ýmislegt gat falist í ergi, til dæmis hugleysi (sem einnig er nefnd...

Fellibylir

Árlega berast nokkrir fellibyljir á norðurhveli jarðar inn á norðanvert Atlantshaf og þar geta þeir stuðlað að myndun krappra lægða af þeirri gerð sem myndast í vestanvindabeltinu og fara oft um Ísland. Leifar af fellibyl orsökuðu mikið óveður á Íslandi...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband