Leita í fréttum mbl.is

Hnignun sjávarþorpa á Vestfjörðum:

 

Picture 075Sú var tíð að sjávarþorpin á vestfjörðum voru eins og blóm í eggi. Iðandi mannlíf, menning og sagan út um allt. Eins og segir í sögu Hrafna flóka. "smjör draup af hverju strái" Eilíft vor í lofti og bjartsýnin réð ríkjum hjá hverri sálu.

Fólkið sem bjó í þorpunum byggði sér bæi, skóla, bryggjur, flugvelli og vegir voru lagðir. Útvegsbændur byggðu sér öflug skip og fiskhús af flottustu hönnun þess tíma.

Fræknustu sjómenn og fengsælustu skipstjórar við N Atlandshaf mönnuðu flota Vestfirðinga sem var sá öflugasti og best búni í víðri veröld. Valinn maður í hverju rúmi.

Harðduglegir íbúar þorpana höfðu nóg að bíta og brenna og atvinnan var meiri en næg fyrir alla. Erlendir sem Íslenskir farandverkamenn komu í þorpin til að aðstoða heimamenn við að gera verðmæti úr öllum þeim afla sem barst að landi.

Frystihús, salthús, skreiðarhús, fiskimjölsverksmiðjur og lýsisbræðslur voru í hverju þorpi sem möluðu samfélaginu og eigendum sínum gull allt árið. Peningarnir flóðu frá útlöndum líkt og í lækjum og hagsældin í þorpunum var mikil.

Árið var 1983: Fiskifræðingar og stjórnmálamenn fundu það út að þorskstofninn við Ísland væri ofveiddur. Þetta sama ár var komið á kvótakeffi við stjórn fiskveiða. Vestfirðingar vöruðu við slíkum bölsýnis spám og töldu að um náttúrlega niðursveiflu væri að ræða.

Vestfirðingar vöruðu við markaðsdrifnu kvótakerfi í fiskveiðum og að sjávarþorpin við Ísland gætu nánast þurkast út þar sem fiskveiðiheimildinar færðust á hendur örfárra braskara sem gerðu sér sjómennina að þrælum og leiguliðum.

Árið er 2005. Sjávarþorpin á Vestfjörðum og víðast hvar á landinu eru eins og eyðibýli. Skipin upp höggvin, brend, sökt, eða þeim hreinlega verið stolið eins og mörg dæmin sanna.

Tilvitnun í Íslandsljóð Einars Benediktsonnar.

Þú folk með eymd í arf !

Snautt og þyrst við gnóttir lífsins Linda,

Litla þjóð, sem geldur stórra synda.

Tilvitnun lýkur.

Örfá sjávarútvegsfyrirtæki eru eftir á Vestfjörðum, nánast allur  flotinn er farinn. Stór hluti af íbúunum er flúin eða við það að flýja. Þeir sem fara og eru farnir eru flest allir meira en minna eignarlausir.

Þeir sem eftir hokra verða að sætta sig við yfirvald þorpana sem haga sér flestir líkt og Jóhann Bogesen stórversír á Óseyri við Axafjörð forðum daga í söguni "Sölku Völku"

Það er komið meira en nóg af ofbeldi sem Íslensk stjórnvöld hafa farið fram með gegn íbúunum í sjávarþorpum vestfjarða. Það verður aldrei sátt né friður á meðan ekki verður snúið til réttlætis og auðlindinni aftur skilað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þeir þingmenn, sem við treystum fyrir fjöreggi okkar, sviku tryggð sína við heimahagana og gengu erinda hagsmunahópa, sem sáu sér leik á borði við að sölsa undir sig sameiginlegan auð okkar.  Útgerðarmenn á vestfjörðum sviku heimabyggðir sínar og seldu viðurværið hæstbjóðanda.  Líkja má því við að selja móður sína sem alið hefur mann af ást við barm sér í ánauð ræningja.

Kerfið var að nafninu til tirl verndar fiskistofnum en ekki til verndar fólkinu. Kvislingarnir voru okkar eigin bræður.

Nú mega vestfirðingar að afskrifa að mestu  hugmyndir um sjávarútveg og setjast niður og láta, sem hann hafi aldrei staðið til boða og hugsa síðan hvernig þeir hefðu hagað afkomu sinni án fiskjar.  Tækifærin eru óþrjótandi í ferðamannaiðnaði, netviðskiptum, smáiðnaði, hátækni, heilsuhælum og hverju, sem hugurinn getur mótað.  Ég legg til að haldin verði málþing borgara á vestfjörðum um þessa valkosti og boðið verði málsmetnandi sérfræðingum á ýmsum sviðum. Vestfirðingar hvattir til að koma með eigin hugmyndir og sérfræðingar í styrkjakerfi evrópusambandsins og norrænnar samvinnu kynni möguleikana þar.

Leita má leiða til að fá fyrirtæki t.d. í lyjaiðnaði eða rannsóknariðnaði til að flytja hluta starfseminnar til vestfjarða.  Það þarf varla stærra fyrirbæri en Eve online tölvuleikinn, til að sjá einu byggðarlagi fyrir skatttekjum t.d. Ívilnun í gjöldum, gæti verið hvetjandi til að fá slík fyrirtæki inn.

Hér þarf þó hugsjónamaður að hafga frumkvæði og koma á koppinn. Möguleikarnir eru nægir. Það þarf bara að hafa sig eftir björginni. Nú er komið nóg af sorg og sút og fórnarlambaviðhorfum.  Nú er tími til kominn að standa á fætur og gera eitthvað markvisst og skipulega.

Ég tek það fram að ég er sjálfur vestfirðingur. Fæddur og uppalinn á Ísafirði. 

Jón Steinar Ragnarsson, 21.1.2007 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband