Leita í fréttum mbl.is

Hvað með þjóðarsátt um fiskveiðiauðlindina ?

Öll náttúra og fiskistofnar fyrir neðan yfirborð sjávar. Er tekið á því í þessum sáttmála ? Eða nær sáttin bara að fjöruborði líkt og áætlunarbúskapur Stalíns forðum daga ?


mbl.is Framtíðarlandið kynnir sáttmála um framtíð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var góð og þörf athugasemd Níels og þér líkt að styðja að þessu. Það er mikil nauðsyn að ALLIR þeir sem leita eftir stuðningi kjósenda með umhverfisvernd sem baráttumál tali skýrum rómi um þetta málefni. Það er okkur öllum ljóst, sem líkt og ég og þú hafa kynnst öllum þeim veiðarfærum sem lög leyfa, að öll skaða þau lífríkið utan handfærið og línan og reyndar netin svo fremi að ekki verði óhöpp.

Botnvarpan er komin á bannlista margra sjávarlíffræðinga og einnig margra þjóða.  Pólitísk stjórnun fiskveiða við Ísland með innsigli HAFRÓ hefur raðað útvegsmönnum á jötuna eftir vægast sagt undarlegum leikreglum. Árangurinn er í samræmi við það og aðeins tímaspursmál hvenær við verðum að stöðva alla sókn í nokkra nytjastofna okkar.

Öll þekking okkar bestu fiskimanna og reynsla þeirra byggð á reynslu fyrri kynslóða er fyrirlitin og kaffærð í reiknilíkönum sem hafa sannað sig í því einu að vera ónothæf. Menn sem vinna landi og þjóð slík óhæfuverk hafa ævinlega verið nefndir þjóðníðingar í gegnum mannkynssöguna og þegið refsingar við hæfi. En til þess að losna við þessa óhappamenn virðist sem við Íslendingar þurfum fyrst að skipta um kjósendur.

Árni Gunnarsson (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband