Leita í fréttum mbl.is

Bátur staðinn að ólöglegum reykingum undan Vestfjörðum

Ætli það verði næsta málið. Fréttin gæti litið út svona: "Áhöfn Bjarma BA-326, staðinn að ólöglegum reykingum 2,3 sjómílur undan Kópanesi." ´Sjóliðar Landhelgisgæslunnar réðust til uppgöngu í skipið laust fyrir kl, 04:00 í nótt og yfirbuguðu áhöfninna sem sat í stakkageymslu og stromp reykti. Landhelgisgæslan hafði í töluverðan tíma fylgst með ferðum skipsins eftir að sést hafði til skipstjóra skipsins lauma pípustert í sjópoka sinn er látið var úr höfn fyrir skömmu. Ég bara spyr ?
mbl.is Sömu reglur gilda um reykingar um borð í skipum og á öðrum vinnustöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já ætli þetta verði ekki nokkurn veginn svona..

Björg F (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 18:37

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þær taka engan enda Birgitta, þetta er bara að byrja. Verst fyrst og svo smáversnar það......verður djöfullegt á endanum....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.4.2007 kl. 20:03

3 Smámynd: dvergur

Mikið djö.... er ég feginn að reykja ekki (þó ég stelist í vindil um áramót eða sjaldnar)

Það eru þá minni líkur á að ég verði "reykingarglæpamaður" þegar lögin taka gildi.

Og þó ég sé reykjaus finnst mér ansi langt gengið í boðum og bönnum varðandi reglugerðir um reykingar.

dvergur, 12.4.2007 kl. 20:58

4 Smámynd: halkatla

reykingar hafa aldrei pirrað mig, samt hef ég aldrei reykt. Það er svo skrítið að það sé enn verið að selja sígarettur, afhverju er það gert fyrst þær eru svona hættulegar og pirrandi?

annars er þetta bara fyndið hjá þér

halkatla, 12.4.2007 kl. 21:06

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Grínlaust, þá hætti ég að reykja fyrir bráðum 14 árum og hætti í 60-80 rettum á dag sem er náttúrulega galið bull, en það hjálpaði ef eitthvað var að það var að byrja að ekki mætti reykja hér og þar t.d. í flugi og ég man hvað þetta fór rosalega í taugarnar, svo mér fannst bara einföldun að þurfa ekki að vera að ergja mig yfir þessum bönnum.....og hætti..... allt annað líf að vera ekki ................."reykingaglæpamaður" með dóm yfir höfði mér.....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.4.2007 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband