25.4.2007 | 14:36
Ég er nú ekki hissa á því
Flokkurinn segir, að áletrunin á skiltunum sé slagorð, sem erlendir virkjanaandstæðingar hafi notað í aðgerðum sínum gegn Kárahnjúkavirkjun og uppbyggingu iðnaðar á Austurlandi. Þær aðgerðir hafi haft það að markmiði að spilla eignum og valda röskun í samfélaginu.
Hver annar en Framsóknarflokkurinn hefur valdið meiri spjöllum á eigum almennings og valdið meiri röskun í samfélaginu ? Sjáum hér örfá dæmi af æði mörgum:
1. Stálu Búnaðarbankanum.
2. Stálu fiskveiðiauðlindinni og gáfu örfáum vinum sínum.
3. Rústuðu nánast öllum sjávarþorpum á landinu.
4. Hröktu þúsundir íbúa sjávarþorpana á vergang eignarlausa.
Auglýsingaskilti Framsóknarflokksins á Egilsstöðum skemmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Facebook
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 2
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 63
- Frá upphafi: 761163
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Amen
Ra (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 14:46
Ekki gleyma að þeir gáfu hluta hálendis og svo núna vatnið...
Ra (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 14:47
Þú ert greinilega á móti mannréttindum. Þú leggst gegn því að réttur fólks til skoðanafrelsis og þátttöku í stjórnmálum sé virtur, sem eru grundvallaratriði lýðræðisins. Þau samfélög sem hafa tekið upp þínar skoðanir eru almennt ekki prísuð af venjulegu fólki.
Gestur Guðjónsson, 25.4.2007 kl. 15:00
Gestur. Hvar stendur að ég sé á móti mannréttindum ? Hvar stendur að ég sé á móti skoðunarfrelsi ? Hvaða samfélög hafa tekið upp mínar skoðanir ? Og að lokum, hvað er venjulegt fólk í þínum augum ?
Palli pé. Er það frasi úr Maxískum fræðum að reka fólk frá byggðum sínum ? Hringdu í Framsókn og fáðu skýringu á því.
Níels A. Ársælsson., 25.4.2007 kl. 15:29
Meiri órabelgirnir þessir Gestur Gé og Palli Pé. Samkvæmt þeirra fræðum eru þeir sem hafa óbeit á Framsóknarflokknum marxistar og í þokkabót á móti mannréttindum.
Jóhannes Ragnarsson, 25.4.2007 kl. 21:14
Hjá sumum mönnum eru stjórnmál ekki til þess að hafa áhrif á það samfélag sem lifum í. Heldur líta þeir á stjórmál sem trúarbrögð og ef þú ert ekki sammála mér í einu og öllu ert þú andstæðingur sem berja þarf á með öllum tiltækum ráðum. Það vita það allir sem vilja vita að þessi fjögur atriði sem þú nefnir eru öll rétt og sönn. Því miður fyrir þá sem hafa trúað á þennan flokk.
Jakob Falur Kristinsson, 26.4.2007 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.