Leita í fréttum mbl.is

Þar lágu Danir í því

danirOrðasambandið þar (eða ) lágu Danir í því virðist ekki mjög gamalt í málinu en er vel þekkt í nútímamáli. Það er notað í merkingunni ‘þar fór nú illa, þarna beið einhver lægri hlut’ og er þá ekki sérstaklega átt við Dani. Ekki er, svo þekkt sé, til saga sem lýsir atburðinum sem vísað er til og Danir koma við sögu en ekki er ólíklegt að orðasambandið hafi þannig komist á kreik.


mbl.is Danskir dagar í Stykkishólmi í góðum gír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Hvað með fótboltaleikinn hér á fyrrihluta síðustu aldar.Þegar Íslendingar unnu Dani í landsleik eftir að hafa boðið þeim í útreiðartúr til Þingvalla,deginum áður.Fræg saga.Danir unnu fyrri leikinn en töpuðu svo eftir umræddan útreiðartúr.

Ólafur Ragnarsson, 18.8.2007 kl. 21:11

2 Smámynd: Guðný

Erum við ekki að misskilja þetta orðasamband eitthvað ? Er ekki átt við að Danir séu fullir ?

Guðný , 18.8.2007 kl. 21:17

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Líklega verður þetta nú seint upplýst. Sennilegast finnst mér að í samtali um eitthvert óhapp sem tengdist þessari þjóð hafi einhverjum viðstaddra orðið þetta að orði. Það hafi síðan lifað og dafnað með okkar þjóð sem lengi vel stóð nú nærri Dönum.

Árni Gunnarsson, 19.8.2007 kl. 11:59

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Annars er þessi tilgáta um Þingvallareiðina svo góð að hún verður eiginlega að vera sönn.

Árni Gunnarsson, 19.8.2007 kl. 12:00

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta orðatiltæki er þannig til komið að hér áður fyrr var almenn andúð á Dönum hér á landi og ef þeir urðu fyrir einhverju óhappi fagnaði landinn því.  Eftir að við losnuðum undan Dönum fóru Íslendingar að nota þetta hver um annan ef viðkomandi lenti í óhappi eða varð undir í einhverju máli.

Jakob Falur Kristinsson, 20.8.2007 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband