Leita í fréttum mbl.is

Nonni frændi frá Eyri við Arnarfjörð

09.08.2007 008Í Landnámu segir svo:
„Örn hét maður ágætur. Hann var frændi Geirmundar heljarskinns. Hann fór af Rogalandi fyrir ofríki Haralds konungs. Hann nam land í Arnarfirði svo vítt sem hann vildi. Hann sat um veturinn á Tjaldanesi, því að þar gekk eigi sól af um skammdegi.

Án rauðfeldur, sonur Gríms loðinkinna úr Hrafnistu og sonur Helgu dóttur Ánar bogsveigis, varð missáttur við Harald konung hinn hárfagra og fór því úr landi í vesturvíking. Hann herjaði á Írland og fékk þar Grelaðar, dóttur Bjartmars jarls.

Þau fóru til Íslands og komu í Arnarfjörð vetri síðar en Örn. Án var hinn fyrsta vetur í Dufansdal. Þar þótti Grelöðu illa ilmað úr jörðu.

Örn spurði til Hámundar heljarskinns, frænda síns, norður í Eyjafirði og fýstist hann þangað. Seldi hann því Áni rauðfeldi lönd öll milli Langaness og Stapa. Án gerði bú að Eyri. Þar þótti Grelöðu hunangsilmur úr grasi


mbl.is Níðstöng reis á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Við þetta má svo bæta, að í Heimsljósi stjórnar mikilmennið Júel J. Júel stórútgerðarfyrirtækinu Grími loðinkinna, sem eflaust var heitið eftir Grími föður Áns rauðfelds.

Jóhannes Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband