Leita í fréttum mbl.is

Ofhleðsla

síldin háfuðNú er eins og runnin sé upp tími síldaráranna þegar menn hlóðu skip sín svo mikið að lítið sem ekkert borð var fyrir báru. Á mörgum skipum voru hafðar merar á lunningunum til að hægt væri að hlaða enn meir af síld á bátana og í raun mun meira en þau gátu borið.

Enda sukku margir til botns þegar hætti að fljóta. Við þessu ástandi brugðust yfirvöld siglingarmála með því að setja hleðslumerki á skipin og sérstakir eftirlitsmenn fóru um hafnir til að fylgjast með merkjunum og voru skipstjórar umsvifalaust sektaðir ef út af var brugðið.

Mér finnst eins og stýrivextir Seðlabankans virki eins og hleðslumerkin og seðlabankastjórinn eins og hleðslumerkja eftirlitsmaðurinn á síldarárunum.

Ljóst er að síldarmerar á lunnungum sumra fjárfesta eru að kafsigla margan grútarprammann !


mbl.is Fjárfestar forðist íslensku krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já Níels, þetta er góð samlíking, allavega fyrir okkur sem vitum hvað þú ert að tala um. Það er á hreinu að það er mikið að gera víða núna, við að reyna að hreinsa ofhleðsluna af dekkinu á ýmsum "grútarprömmum". Vonandi að það séu ekki opin boxalok sem setja allt á hliðina.......En sennilega lenda nokkrir á botninum og við verðum bara að vona að það verði mannbjörg....

Það er eins gott að verða ekki nærri þegar samskonar skriða eins og núna ríður yfir í verðbréfunum, fellur í kvótakerfi andskotans og framsóknar, það kemur að því eins og allir vita.....Af sömu ástæðum og í bréfunum...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.11.2007 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband